logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir

Skreytingadagur og foreldrakaffi - Föstudaginn 1.desember 8:10-9:30

28/11/23Skreytingadagur og foreldrakaffi - Föstudaginn 1.desember 8:10-9:30
Allir árgangar skólans föndra á sama tíma þ.e. frá kl. 8:10 – 9:30, íþróttir, sund, list- og verkgreinar falla því niður á þessum tíma en þess í stað mæta nemendur í sínar umsjónarstofur. Allir sem vilja og geta eru hvattir til að mæta jólalegir þennan dag t.d. með jólahúfu eða í jólapeysu. Nemendur og starfsfólk mun gera sér glaðan dag, skreyta stofur, föndra, njóta samveru, drekka súkkulaði og maula á smákökum. Skólinn býður heitt súkkulaði en nemendur koma með smákökur að heiman. Minnum á að skólinn okkar er hnetulaus Vinsamlega komið gangandi ef þess er nokkur kostur þar sem bílastæði við skólann eru af skornum skammti. Með jólakveðju frá starfsmönnum Lágafellsskóla
Meira ...

Dagskrá fyrir haustfrí skólana í Mosfellsbæ daganna 25 - 27. okt

23/10/23Dagskrá fyrir haustfrí skólana í Mosfellsbæ daganna 25 - 27. okt
Dagskrá fyrir haustfrí skólana í Mosfellsbæ daganna 25 - 27. okt. sem verður í íþróttamiðstöðum Lágafelli og Varmá, Bólinu og hjá Golfklúbbnum
Meira ...

Kvennaverkfall þriðjudaginn 24.október - skert starfsemi skólans

23/10/23
Í ljósi boðaðs kvennaverkfalls þriðjudaginn 24.október þá fellur kennsla niður í Lágafellsskóla að mestum hluta þennan dag. Sömuleiðis er verulega skert starfsemi í Frístund þennan dag. Kennsla verður í 1. og 2.bekk frá 8:10 – 13:20. Nemendur í heimahóp 4.IS fá kennslu frá 8:10-11:20 og fara heim eftir að þeir ljúka hádegismat. Að öðru leyti fellur öll kennsla niður þennan dag. Frístund verður opin frá 13:20 en eingöngu fyrir nemendur 1.bekk.
Meira ...

Fréttatilkynning

08/09/23
Kæru foreldrar Því miður átti sér stað sá atburður í Lágafellsskóla í gær að persónuupplýsingar um ákveðinn hóp nemenda rötuðu á samfélagsmiðla. Umræddar upplýsingar hafði kennari skráð í minnisbók í kjölfar skilafundar í ágúst þegar árgangurinn var að flytjast milli stiga innan skóla, af miðstigi yfir á unglingastig.
Meira ...

Skólasetning miðvikudaginn 23.ágúst 2023

11/08/23Skólasetning miðvikudaginn 23.ágúst 2023
Lágafellsskóli verður settur miðvikudaginn 23.ágúst Nemendur 1. bekkjar, ásamt foreldrum, mæta til viðtals við umsjónarkennara dagana 22.-23. ágúst skv. boðun sem verður send til þeirra í næstu viku. Formleg skólasetning fyrir 1. bekk verður fimmtudaginn 24. ágúst í sal Lágafellsskóla kl. 08:15 og kennsla skv. stundaskrá hefst strax að henni lokinni. Kennsla hefst skv. stundaskrá hjá 2. - 10. bekk fimmtudaginn 24. ágúst Frístundasel opnar fimmtudaginn 24. ágúst kl. 13:20-16:30.
Meira ...

Námsmat

25/05/23
Markmiðið með námi er að auka hæfni nemenda. Lýsingar á markmiðum skulu alfarið beinast að því sem nemandi á að geta gert við lok hvers skólaárs. • Samkvæmt aðalnámskrá á að meta hæfni en ekki fjölda eða magn þekkingaratriða • Hæfni samanstendur af þekkingu og leikni. Hæfni er ekki endilega að muna allt utanað heldur hversu vel þú getur nýtt þér það sem þú ert að læra hverju sinni við að leysa verkefni. • Hæfniviðmið fyrir allar greinar birtist í Aðalnámskrá. Unnið er með hæfniviðmið og hefur nemandi tækifæri til að bæta hæfni sína jafnt og þétt. Við lok skólagöngu er verið að horfa á hver raunveruleg hæfni nemandans er og byggir lokamat á því. Stuðst er við skilgreindar hæfnilýsingar við námsmat og er notast við kvarða til að sjá hvaða einkunn passar best við hæfni nemandans.
Meira ...

Upplýsingar til foreldra vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS þriðjudaginn 23. maí og miðvikudaginn 24. maí.

19/05/23
Boðað verkfall starfsfólks STAMOS mun hafa nokkur áhrif á skólastarf þá daga sem það stendur yfir. Í þessari lotu er boðað til verkfalls dagana 23.-24. maí en verkfallið stendur yfir frá kl.00:00 þann 23. maí til kl.12:00 þann dag og svo aftur frá kl. 00:00 – 23:59 þann 24. maí. Starfsmannahópurinn sem þetta varðar er eins og áður húsvörður, kerfisstjóri, ritarar, stuðningsfulltrúar, frístundaleiðbeinendur, starfsfólk mötuneytis og skólaliðar. Þetta hefur í för með sér mjög skerta starfsemi á skrifstofu skólans þessa daga, engin starfsemi er í mötuneyti skólans þessa daga, störf sem stuðningsfulltrúar sinna falla niður s.s. gæsla að morgni áður en skóli hefst, gæsla í frímínútum og frístundastarf 24.maí fellur niður. Ávaxtabiti og hádegismatur er ekki í boði þessa daga. Frístundastarf fellur niður 24.maí. Reikningar v/ávaxtabita, hádegismatar og frístundar verða leiðréttir til samræmis ef til verkfalls kemur.
Meira ...

Upplýsingar vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS

11/05/23
Til foreldra nemenda í Lágafellsskóla Upplýsingar til foreldra vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS (Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar) mánudaginn 15. maí og til hádegis þriðjudaginn 16. maí. Boðað verkfall starfsfólks STAMOS mun hafa nokkur áhrif á skólastarf þá daga sem það stendur yfir. Í fyrstu er búið að boða til verkfalls dagana 15.-16.maí en verkfallið stendur yfir frá kl.00:00 þann 15.maí til kl.12:00 þann 16.maí. Starfsmannahópurinn sem þetta varðar eru húsvörður, kerfisstjóri, ritarar, stuðningsfulltrúar, frístundaleiðbeinendur, starfsfólk mötuneytis og skólaliðar. Þetta hefur í för með sér mjög skerta starfsemi á skrifstofu skólans þessa daga, engin starfsemi er í mötuneyti skólans þessa daga, störf sem stuðningsfulltrúar sinna falla niður s.s. gæsla í frímínútum og frístundastarf 15.maí fellur niður. Ávaxtabiti og hádegismatur er ekki í boði þessa daga. Frístundastarf fellur niður 15.maí.
Meira ...

Sumarfrístund í Lágafellsskóla sumarið 2023 fyrir nemendur í 1. – 4.bekk

27/03/23
Sumarfrístund verður í boði 8. - 23. júní fyrir börn fædd 2016 - 2013. Síðasti skráningardagur er 5. maí og eftir það er skráning bindandi. ​
Meira ...

Lokakeppni í Stóru upplestrarkeppninni

24/03/23Lokakeppni í Stóru upplestrarkeppninni
Fim. 23.mars var lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk í Mosfellsbæ. Fulltrúar Lágafellsskóla í keppninni í ár voru Emelía Dagbjört Thorlacius 7.-ÁPR, Hrafnhildur Rut Njálsdóttir 7.-RG, Kristján Magnús Davíðsson 7.-AH og Sunneva Jónatansdóttir 7.-RG og stóðu þau sig öll frábærlega vel. Þjálfari liðsins var Ýr Þórðardóttir sem ásamt umsjónarkennurum árgangsins Arnari, Árna Pétri, Drífu Björk og Rósu hafa þjálfað nemendur fyrir keppnina.
Meira ...

Síða 2 af 30

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira