19/12/23Nýjar gjaldskrár taka við frá 1/1 2024 og er hækkanir um 7,5%
Helstu breytingar eru að ávextabiti fer í 142 kr, hádegismatur 495 kr, panini 380 kr. Hver klst í frístund fer í 406 og hver auka vistunardagur í skólaleyfum fer í 3459 kr.
https://mos.is/stjornsysla/fjarmal/gjaldskrar
Meira ... 15/12/23Framkvæmdin verður eftirfarandi;
Frá og með 4. janúar 2024 verða allar kennslustundir símalausar (símar geymdir í skólatöskum/skápum).
Vikuna 8 - 12. janúar verður fræðsla fyrir nemendur í 7. - 10. bekk um skaðsemi of mikillar farsímanotkunar.
Fræðsla fyrir kennara sama efnis fer fram í vikunni 15.-19. janúar.
Í vikunni 15.-19. janúar verður skólaþing með nemendum. Þar mun fara fram hugmyndavinna varðandi afþreyingu í frímínútum svo eitthvað sé nefnt.
Vikuna 22. - 27. janúar fer bréf heim þar sem reglurnar eru tíundaðar, um framkvæmdina, hlutverk foreldra, nemenda og starfsmanna skólans sem og viðbrögð ef reglum er ekki hlítt.
Frá 1. febrúar 2024 verður Lágafellsskóli símalaus skóli og er þá bæði átt við snjallsíma og snjallúr.
Meira ... 05/12/23Jólamatur nemenda verður föstudaginn 8.desember. Í matinn er Jólaskinka, paprikukryddaðar kartöflur, grænar baunir, rauðkál og brún sósa. Ávaxtasafi/vatn og íspinni í eftirrétt.
Þeir nemendur sem ekki eru í mötuneytisáskrift geta keypt þessa máltíð staka á 700 kr sem greidd er fyrirfram, sjá neðar.
Þegar stofujólin/jólaböll eru hjá 1. – 7. bekk miðvikudaginn 20. desember er pizza í matinn og þeir nemendur sem ekki eru í mötuneytisáskrift geta keypt þessa máltíð staka á 700 kr.
Sömuleiðis geta nemendur í 8.-10.bekk sem ekki eru skráðir í mötuneytisáskrift keypt þessa máltíð staka en þeirra stofujól/jólaball eru að kvöldi 19.desember.
Í boði verður pizza með pepperoni, skinku, margarita og veganpizza.
Þeir sem hyggjast kaupa sér staka máltíð greiða 700 krónur fyrir máltíðina hjá ritara, fyrir fimmtudaginn 7.desember, en einnig má leggja inn á reikning 549-26-2240 kt. 500904-2240 og passa þá að skrá bekk og nafn nemenda sem verið er að kaupa fyrir og senda staðfestingu á ritara sigrun.halldorsdottir@mosmennt.is
Jólakveðja
Starfsmenn Lágafellsskóla
Meira ... 28/11/23Allir árgangar skólans föndra á sama tíma þ.e. frá kl. 8:10 – 9:30, íþróttir, sund, list- og verkgreinar falla því niður á þessum tíma en þess í stað mæta nemendur í sínar umsjónarstofur.
Allir sem vilja og geta eru hvattir til að mæta jólalegir þennan dag t.d. með jólahúfu eða í jólapeysu.
Nemendur og starfsfólk mun gera sér glaðan dag, skreyta stofur, föndra, njóta samveru, drekka súkkulaði og maula á smákökum.
Skólinn býður heitt súkkulaði en nemendur koma með smákökur að heiman. Minnum á að skólinn okkar er hnetulaus
Vinsamlega komið gangandi ef þess er nokkur kostur þar sem bílastæði við skólann eru af skornum skammti.
Með jólakveðju frá starfsmönnum Lágafellsskóla
Meira ... 23/10/23Dagskrá fyrir haustfrí skólana í Mosfellsbæ daganna 25 - 27. okt. sem verður í íþróttamiðstöðum Lágafelli og Varmá, Bólinu og hjá Golfklúbbnum
Meira ... 23/10/23Í ljósi boðaðs kvennaverkfalls þriðjudaginn 24.október þá fellur kennsla niður í Lágafellsskóla að mestum hluta þennan dag.
Sömuleiðis er verulega skert starfsemi í Frístund þennan dag.
Kennsla verður í 1. og 2.bekk frá 8:10 – 13:20.
Nemendur í heimahóp 4.IS fá kennslu frá 8:10-11:20 og fara heim eftir að þeir ljúka hádegismat.
Að öðru leyti fellur öll kennsla niður þennan dag.
Frístund verður opin frá 13:20 en eingöngu fyrir nemendur 1.bekk.
Meira ... 08/09/23Kæru foreldrar
Því miður átti sér stað sá atburður í Lágafellsskóla í gær að persónuupplýsingar um ákveðinn hóp nemenda rötuðu á samfélagsmiðla.
Umræddar upplýsingar hafði kennari skráð í minnisbók í kjölfar skilafundar í ágúst þegar árgangurinn var að flytjast milli stiga innan skóla, af miðstigi yfir á unglingastig.
Meira ... 25/05/23Markmiðið með námi er að auka hæfni nemenda. Lýsingar á markmiðum skulu alfarið beinast að því sem nemandi á að geta gert við lok hvers skólaárs.
• Samkvæmt aðalnámskrá á að meta hæfni en ekki fjölda eða magn þekkingaratriða
• Hæfni samanstendur af þekkingu og leikni. Hæfni er ekki endilega að muna allt utanað heldur hversu vel þú getur nýtt þér það sem þú ert að læra hverju sinni við að leysa verkefni.
• Hæfniviðmið fyrir allar greinar birtist í Aðalnámskrá.
Unnið er með hæfniviðmið og hefur nemandi tækifæri til að bæta hæfni sína jafnt og þétt. Við lok skólagöngu er verið að horfa á hver raunveruleg hæfni nemandans er og byggir lokamat á því.
Stuðst er við skilgreindar hæfnilýsingar við námsmat og er notast við kvarða til að sjá hvaða einkunn passar best við hæfni nemandans.
Meira ... 19/05/23
Boðað verkfall starfsfólks STAMOS mun hafa nokkur áhrif á skólastarf þá daga sem það stendur yfir. Í þessari lotu er boðað til verkfalls dagana 23.-24. maí en verkfallið stendur yfir frá kl.00:00 þann 23. maí til kl.12:00 þann dag og svo aftur frá kl. 00:00 – 23:59 þann 24. maí. Starfsmannahópurinn sem þetta varðar er eins og áður húsvörður, kerfisstjóri, ritarar, stuðningsfulltrúar, frístundaleiðbeinendur, starfsfólk mötuneytis og skólaliðar.
Þetta hefur í för með sér mjög skerta starfsemi á skrifstofu skólans þessa daga, engin starfsemi er í mötuneyti skólans þessa daga, störf sem stuðningsfulltrúar sinna falla niður s.s. gæsla að morgni áður en skóli hefst, gæsla í frímínútum og frístundastarf 24.maí fellur niður.
Ávaxtabiti og hádegismatur er ekki í boði þessa daga.
Frístundastarf fellur niður 24.maí.
Reikningar v/ávaxtabita, hádegismatar og frístundar verða leiðréttir til samræmis ef til verkfalls kemur.
Meira ... 11/05/23Til foreldra nemenda í Lágafellsskóla
Upplýsingar til foreldra vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS (Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar) mánudaginn 15. maí og til hádegis þriðjudaginn 16. maí.
Boðað verkfall starfsfólks STAMOS mun hafa nokkur áhrif á skólastarf þá daga sem það stendur yfir. Í fyrstu er búið að boða til verkfalls dagana 15.-16.maí en verkfallið stendur yfir frá kl.00:00 þann 15.maí til kl.12:00 þann 16.maí. Starfsmannahópurinn sem þetta varðar eru húsvörður, kerfisstjóri, ritarar, stuðningsfulltrúar, frístundaleiðbeinendur, starfsfólk mötuneytis og skólaliðar.
Þetta hefur í för með sér mjög skerta starfsemi á skrifstofu skólans þessa daga, engin starfsemi er í mötuneyti skólans þessa daga, störf sem stuðningsfulltrúar sinna falla niður s.s. gæsla í frímínútum og frístundastarf 15.maí fellur niður.
Ávaxtabiti og hádegismatur er ekki í boði þessa daga.
Frístundastarf fellur niður 15.maí.
Meira ... Síða 1 af 2