logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir eftir mánuðum

Vetrarleyfi 24. 25. og 28. október og opnun þessa daga í frístund

18/10/19
Fim. 24. og fös. 25. okt. er vetrarfrí í skólanum og því engin kennsla þessa daga. Mán. 28. okt. er skipulagsdagur starfsmanna í skólanum en nemendur eru í fríi. Frístundaselið er opið dagana 24. og 25.október í vetrarleyfinu frá kl. 8.00 – 16.00 fyrir þá sem hafa nú þegar skráð sig þessa daga. Hinsvegar er Frístundaselið er opið á venjulegum tíma á starfsdeginum 28. október frá 13.20 – 17.00 fyrir alla nemendur í 1.-4. sem eru skráðir þar venjulega. Minnum einnig á að enginn skólaakstur eða frístundarrúta er þessa daga 24. 25. og 28. október Með kveðju Sjórnendur Lágafellsskóla
Meira ...

Skólahlaup UMSK 2019 – Mosfellsbæ

15/10/19Skólahlaup UMSK 2019 – Mosfellsbæ
Skólahlaup UMSK 2019 var haldið í Mosfellsbæ miðvikudaginn 2. október. Góð þátttaka var í hlaupinu eða um 600 hlauparar. Keppt var í fjórum árgöngum þ.e. 4. -7. bekk. Fyrstu þrír í hverjum aldursflokki fengu viðurkenningu. Af 24 nem. sem komust á verðlaunapall átti Lágafellsskóli 11 :-)
Meira ...

Þemadagar hjá 1. -7.bekk 15. - 17. okt.

11/10/19
Mæting og lok dags hjá 1. og 2. bekk á Höfðabergi er hefðbundinn þ.e. kl. 8:10-13:20. Mæting hjá 3. – 7. bekk er kl. 8:30 í sína umsjónarstofu. Allri kennslu lýkur kl. 13:20.
Meira ...

Bleikur föstudagur 11/10

09/10/19
Föstudagurinn 11. október 2019 er Bleiki dagurinn. Í tilefni dagsins ætlum við í Lágafellsskóla að klæðast bleikum fötum eða skreyta okkur með bleiku. Bleiki dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda undanfarin ár í bleikum október. Þennan dag hvetjum við landsmenn til að bera slaufuna, klæðast bleiku og lýsa skammdegið upp í bleikum ljóma svo allir sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu.
Meira ...

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira