Fréttir eftir mánuðum
Undankeppni í Stóru upplestrarkeppninni
29/02/16Mán. 29/2 kepptu 11 glæsilegir fulltrúar úr 7.bekk í sal skólans um það hvaða 5 úr þeirra hópi yrðu fulltrúar skólans á lokakeppninni sem verður 10. mars í Varmárskóla kl. 17:30.
Meira ...Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2016-17
26/02/16Fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2016 fer fram frá 01. mars til 15. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu (sjá nánar reglur um skiptingu skólasvæða á vef Mosfellsbæjarwww.mos.is).
Meira ...Ofverndun barna - Opið hús mið. 24. feb. kl. 20 í Listasal Mosfellsbæjar.
18/02/16Að þessu sinni mun Ólafur Grétar fjölskylduráðgjafi fjalla um ofverndun í uppeldi barna. Er hægt að koma í veg fyrir að börn lendi í erfiðleikum? Er hægt að verja börn fyrir óréttlæti lífsins ?
Meira ...Listaskóli Mosfellsbæjar í heimsókn
15/02/16Fjölmargir nemendur Listaskólans á öllum aldri fluttu okkur ýmis verk í dag sem m.a. voru flutt á gítar, flautu, píanó, hljómsveit og söngs. Takk kærlega fyrir flutninginn.
Meira ...Niðurstöður úr könnun meðal foreldra vegna vetrarleyfa
14/02/16Með því að smella á fyrirsögnina má nálgast niðurstöður allra foreldra í grunnskólum Mosó vegna vetrarleyfa á næsta ári. Flestir vilja 2+2 eða 2+3 f. og e. áramót en síðan er það svo ekkert vetrarleyfi.
Meira ...Öskudagsball
11/02/16Frábær öskudagsböll undir styrkri leiðsögn Erlu danskennara fór fram í skólanum þar sem allskonar furðuverur skemmtu sér vel saman.
Hér má sjá myndir frá deginum.
Meira ...Forritunarkeppni grunnskólanna
09/02/16Verður haldin í fyrsta sinn í apríl 2016. Forkeppni verður 22.-28.feb. Þessi keppni er bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Meira ...Hvaða bækur á að kaupa á skólabókasafnið?
08/02/16
Fyrir jólin var kosningin Hvaða bækur á að kaupa fyrir skólasafnið? haldin á Fræðasetri Lágafellsskóla. Tilgangurinn var að leyfa nemendum að hafa áhrif á uppbyggingu skólabókasafnsins.
Úrslitin voru eftirfarandi:
Meira ...Heimsókn í Hörpuna
05/02/16Nemendur í 5. og 7. b. auk sérdeildar fóru í dag á sinfóníutónleika í Hörpunni þar sem boðið var upp á Vísindatónleika Ævars vísindamanns. Allir skemmtu sér vel og voru til fyrirmyndar á tónleikunum.
Meira ...