logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir eftir árum

Helgileikur hjá 5.bekk

16/12/16Helgileikur hjá 5.bekk
Hinn árlegi helgileikur 5.bekkinga var sýndur í Lágafellskirkju 13.-16.des. en hver bekkur átti sinn sýningardag. Þetta var hátíðleg og notaleg stund þar sem nem. og starfsmenn hlýddu saman á boðskap jólanna.
Meira ...

Laus störf í Lágafellsskóla

15/12/16Laus störf í Lágafellsskóla
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
Meira ...

Stofu og litlu jólin hjá nemendum 19. og 20. des.

15/12/16
Smellið á fyrirsögn til að nálgast viðhengi með dagskrá daganna.
Meira ...

Laus störf við Lágafellsskóla

14/12/16Laus störf við Lágafellsskóla
Smellið á fyrirsögn til að lesa um laust starf stuðningsfulltrúa og á leikskóladeild 5 ára á Höfðabergi
Meira ...

Hvaða bækur á að kaupa á skólabókasafnið?

08/12/16Hvaða bækur á að kaupa á skólabókasafnið?
Nú á Fræðasetri skólans er hafin kosningin Hvaða bækur á að kaupa fyrir skólasafnið? Tilgangur kosninganna er að leyfa nemendum að hafa áhrif á uppbyggingu skólabókasafnsins. Kosningu lýkur þann 15. desember og þá verður talið upp úr kjörkössunum
Meira ...

Skreytingadagur 3. - 10. bekkur

25/11/16Skreytingadagur 3. - 10. bekkur
Árlegur skreytingadagur skólans var haldinn fös. 25/11 þegar nemendur, foreldrar og starfsmenn föndruðu saman og skreyttu skólann hátt og lágt. Boðið var upp á heitt súkkulaði í salnum sem drukkið var með smákökum og fleira góðgæti sem nemendur komu með sér. Nú styttist óðum til jóla og margir yngri nemendur alveg með það á hreinu að setja ætti skóinn í út í glugga sun. 11.des en Stekkjastaur kemur til byggða aðfaranótt mánudagsins.
Meira ...

Laus störf við Lágafellsskóla

18/11/16Laus störf við Lágafellsskóla
Við skólann og útibú þess á Höfðabergi eru nú laus ýmis störf. Smellið á fyrirsögn til að lesa meira.
Meira ...

Gunnar Helgason rithöfundur í heimsókn

14/11/16Gunnar Helgason rithöfundur í heimsókn
Gunnar Helgason rithöfundur með meira kom í heimsókn í dag og las fyrir nemendur í 3.-7.bekk upp úr nýju bók sinni Pabbi prófessor sem er framhald af bókinni Mamma klikk. Bókin verður trúlega komin á bókasafn skólans í næstu viku en nemendur voru yfir sig hrifnir af lestrinum.
Meira ...

Lágafellsskóli 15 ára

11/11/16Lágafellsskóli 15 ára
Skólinn okkur fagnar 15 ára afmæli um þessar mundir en fyrsta sjálfstæða ár skólans var veturinn 2001-2002 en áður hafði hann starfað sem útibú í 2 ár frá Varmárskóla og hét þá Vestursetur. Síðan þá hefur nemendafjöldi rúmlega fjórfaldast og er skólinn núna einn af þeim fjölmennustu á landinu. Allir fengu köku í tilefni dagsins.
Meira ...

Tilkynning vegna veðurs fös. 11.11

11/11/16
Rok og rigning getur seinkað ferðum nemenda til skóla. Skólar eru opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla, þetta á sérstaklega við í efri byggðum og þar sem börn þurfa að fara yfir opin svæði á leið sinni í skóla. Með yngri börn er hér átt við 12 ára og yngra.
Meira ...

Síða 1 af 6

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira