logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Foreldrar

Í Lágafellsskóla er lagt upp úr góðu samstarfi við foreldra.

Skipulögð foreldraviðtöl vegna allra nemenda eru tvisvar á ári, í byrjun nóvember og í byrjun febrúar. Utan þeirra eru foreldrar hvattir til að notfæra sér símatímana eða senda kennurunum tölvupóst.

Foreldrafélagið heldur aðalfund einu sinni á ári og eru fundargerðir birtar undir flipanum foreldrafélag hér til hliðar, sem og lög félagsins.

Hver bekkjardeild á sér tvo fulltrúa sem eru tengiliðir umsjónakennarans (skólans) við foreldra barnanna í viðkomandi deild.

Tímabundið leyfi

Foreldrar þurfa að fylla út umsókn í Íbúagátt Mosfellsbæjar ef nemendur þurfa leyfi í meira en einn skóladag.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira