logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Skreytingadagur og foreldrakaffi - Föstudaginn 1.desember 8:10-9:30

28/11/2023
Skreytingadagur og foreldrakaffi - Föstudaginn 1.desember 2023 8:10-9:30


Nemendur og starfsfólk mun gera sér glaðan dag, skreyta stofur, föndra, njóta samveru, drekka súkkulaði og maula á smákökum.

Skólinn býður heitt súkkulaði en nemendur koma með smákökur að heiman. Minnum á að skólinn okkar er hnetulaus.

Allir árgangar skólans föndra á sama tíma þ.e. frá kl. 8:10 – 9:30, íþróttir, sund, list- og verkgreinar falla því niður á þessum tíma en þess í stað mæta nemendur í sínar umsjónarstofur.

Allir sem vilja og geta eru hvattir til að mæta jólalegir þennan dag t.d. með jólahúfu eða í jólapeysu.

Vinsamlega komið gangandi ef þess er nokkur kostur þar sem bílastæði við skólann eru af skornum skammti.

Með jólakveðju frá
starfsmönnum Lágafellsskóla
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira