logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Upplýsingar vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS

11/05/2023

Til foreldra nemenda í Lágafellsskóla

Upplýsingar til foreldra vegna boðaðs verkfalls starfsfólks í Stéttarfélaginu STAMOS (Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar) mánudaginn 15. maí og til hádegis þriðjudaginn 16. maí.

Boðað verkfall starfsfólks STAMOS mun hafa nokkur áhrif á skólastarf þá daga sem það stendur yfir. Í fyrstu er búið að boða til verkfalls dagana 15.-16.maí en verkfallið stendur yfir frá kl.00:00 þann 15.maí til kl.12:00 þann 16.maí.  Starfsmannahópurinn sem þetta varðar eru húsvörður, kerfisstjóri, ritarar, stuðningsfulltrúar, frístundaleiðbeinendur, starfsfólk mötuneytis og skólaliðar. 

Þetta hefur í för með sér mjög skerta starfsemi á skrifstofu skólans þessa daga, engin starfsemi er í mötuneyti skólans þessa daga, störf sem stuðningsfulltrúar sinna falla niður s.s. gæsla í frímínútum og frístundastarf 15.maí fellur niður.

Ávaxtabiti og hádegismatur er ekki í boði þessa daga.

Frístundastarf fellur niður 15.maí.

Reikningar v/ávaxtabita, hádegismatar og frístundar verða leiðréttir til samræmis ef til verkfalls kemur.

 

Ef til verkfalls kemur þá mun skipulag skólastarfs þessara daga verða með eftirfarandi hætti:

Sjá bréf sem sent var til foreldra

1.-2.bekkur

Mánudagur 15.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá 08:10 - 11:20.  Kl. 11:20 eru nemendur sendir heim.

Morgungæsla í höndum þriggja kennara sem þegar eru skráðir með gæslu á þessum tíma ásamt skólastjóra.

Enginn ávaxtabiti þennan dag.

Engin frístund þennan dag.

Þriðjudagur 16.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá kl.12:00.

Frístund hefst kl.13:20 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir

 

3.-4.bekkur

Mánudagur 15.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá kl. 08:10-09:30. Kl. 09:30 eru nemendur sendir heim.

Enginn ávaxtabiti þennan dag.

Engin frístund þennan dag.

Þriðjudagur 16.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá kl.12:00.

Frístund hefst kl.13:20 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

 

5.-7.bekkur

Mánudagur 15.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá kl. 08:10-09:30. Kl. 09:30 eru nemendur sendir heim.

Enginn ávaxtabiti þennan dag.

Þriðjudagur 16.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá kl. 8:10-11:20, nemendur sendir heim í hádeginu frá kl. 11:20 – 12:00 og kennt aftur skv. stundatöflu frá kl. 12:00.  

Morgungæsla í höndum þriggja kennara sem þegar eru skráðir með gæslu á þessum tíma ásamt skólastjóra.

Enginn ávaxtabiti þennan dag.

Enginn hádegismatur þennan dag.

 

8.-10.bekkur

Mánudagur 15.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá kl. 08:10.  Nemendur sendir heim í hádeginu frá kl. 12:05 – 12:35.  Kennt aftur skv. stundaskrá frá kl. 12:35.

Enginn hádegismatur þennan dag.

Þriðjudagur 16.maí.

Kennt skv. stundaskrá frá kl. 08:10.  Nemendur geta nýtt matsalinn í hádeginu frá kl. 12:05 – 12:35 en enginn matur í boði eins og áður hefur komið fram.  Kennt aftur skv. stundaskrá frá kl. 12:35.

 

Við vonum að foreldrar sýni þessu skilning en við höfum leitað allra leiða til að hafa sem mest skólastarf þessa daga.  Á sama tíma leggjum við okkur fram um að virða þær leikreglur sem gilda þegar til verkfalls kemur og göngum ekki í störf fólks sem berst fyrir bættum kjörum enda er það lögbrot.

Á eftirfarandi slóð má lesa frétt um málið á vef Mosfellsbæjar

https://mos.is/mannlif/um-mosfellsbae/frettir/verkfoll-sem-hafa-ahrif-a-starfsemi-allra-leikskola-og-grunnskola-i-naestu-viku

Stjórnendur Lágafellsskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira