logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir eftir árum

Bókagjöf Foreldrafélags Lágafellsskóla

29/05/20Bókagjöf Foreldrafélags Lágafellsskóla
Enn og aftur fær skólasafnið stórkostlega gjöf frá foreldrafélagi Lágafellsskóla þegar það gaf safninu 150.000 krónur til bókakaupa.
Meira ...

Valgreinar fyrir tilvonandi 8. 10. bekkinga 2020-2021

27/05/20
Bæklingur með lýsingu á valgreinum er kominn inn á heimasíðu skólans http://www.lagafellsskoli.is/skolastarfid/valgreinar/
Meira ...

Lestrarátakið "Fuglar á grein" úrslit

22/05/20Lestrarátakið "Fuglar á grein" úrslit
Lestrarátakinu "Fuglar á grein" lauk á föstudaginn í síðustu viku en í dag var tilkynnt hvaða bekkir lásu mest en það voru 2. bekkur á Höfðabergi, 3. GEA á yngsta stigi, 5. RG á miðstigi og 10.ÓKJ á unglingastigi. Samtals lásu nemendur í 161.768 mínútur sem gera 2.696 klukkustundir eða 112 dagar 😊 Allir fengu viðurkenningarskjal og verðlaunahafar fengu óvæntan glaðning. Til hamingju krakkar, þið stóðuð ykkur vel!
Meira ...

Umhverfissáttmáli Lágafellsskóla

18/05/20Umhverfissáttmáli Lágafellsskóla
Fimmtudaginn 14. maí söfnuðust umhverfisfulltrúar saman á sal skólans til að skapa saman umhverfissáttmála Lágafellsskóla. Fjölmargir aðrir nemendur komu einnig að þeirri vinnu. Umhverfissáttmálinn er lokaskrefið í átt að flöggun Grænfánans, sem stefnt hefur verið að í tvo vetur. Sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf fengu fulltrúarnir íspinna og viðurkenningarskjal. Sáttmálinn verður kynntur á næstu dögum.
Meira ...

Búið að opna fyrir skráningu hjá verðandi 1.bekk haustið 2020 í fristundasel

13/05/20
Við viljum vekja eftirtekt á því að búið er að opna fyrir umsóknir í (vetrar) frístundasel fyrir verðandi 1. bekkinga haustið 2020 á Íbúagátt Mosfellsbæjar. Einnig viljum við benda öllum þeim sem NÚNA eru skráðir í mötuneyti að þeir halda sinni áskrift áfram yfir á næsta skólaár og þarf því EKKI að sækja sérstaklega um það. Þeir sem ætla að hætta í mat á næsta skólaári þurfa hinsvegar að segja upp áskriftinni inn á Íbúagáttinni fyrir 20.ágúst.
Meira ...

Lestrarátakið "Fuglar á grein"

07/05/20Lestrarátakið "Fuglar á grein"
Lestrarátakið "Fuglar á grein" hófst í Lágafellsskóla í dag og stendur í 10 daga eða fram til 15. maí. Nemendur skrá þær mínútur sem þeir lesa heima og í skólanum á skráningarblað sitt. Auk þess velja þeir fugl (hjá kennara) og skrá á hann þær mínútur sem þeir lesa næstu þrjá daga. Því næst klippa þeir fuglinn út og festa hann upp í gluggann í bekkjarstofu sinni. Þetta gera þeir á þriggja daga fresti þar til lestrarátakinu lýkur og í lok átaksins á hver nemandi þrjá fallega fugla í glugga skólastofu sinnar. Áfram lestur!
Meira ...

Skólastarf hefst skv. stundaskrá mán. 4. maí

30/04/20
Nú erum við loksins að sjá fyrir endann á skertu skólastarfi sem staðið hefur frá 16. mars. Frá og með mánudeginum 4.maí n.k. mun allt skólastarf falla í eðlilegar horfur og kennt verður skv. stundatöflu frá og með þeim degi. Allir nemendur mæta því kl. 8:10 á mánudaginn og nota þann inngang sem þeir voru með fyrr í vetur.
Meira ...

Hljóð- rafbækur og fleira

17/04/20
Komin er inn síða undir flipanum Nemendur þar sem búið er að safna saman efni sem getur stytt okkur stundir http://www.lagafellsskoli.is/nemendur/rafbaekur-hljodbaekur-og-fleira/
Meira ...

Skólaganga barna á tímum COVID-19 faraldurs

25/03/20
Bréf frá Embætti landlæknis og sóttvarnalæknis til skólastjórnenda, kennara og foreldra
Meira ...

Samkomubann og börn

23/03/20
Skólar, leikskólar og íþróttafélög hafa skipulagt vandlega fyrirkomulag næstu daga og vikur til að fara eftir fyrirmælum heilbrigðisráðherra um takmarkanir á skólastarfi og samkomum.
Meira ...

Síða 3 af 6

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira