logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fréttir eftir árum

Skólaþing mánudaginn 11.október

04/10/21
Í tengslum við endurskoðun á menntastefnu Mosfellsbæjar verður haldið skólaþing mánudaginn 11.október. Skólaþingið verður haldið í Helgafellsskóla og skipulega tekið á móti nemendum, starfsmönnum og foreldrum ásamt öðrum þeim sem áhuga hafa á að taka þátt í verkefninu. Nemendur kjósa fulltrúa úr sínum röðum, starfsmenn og foreldrar hafa fengið hlekk á skráningarform þar sem þeir geta skráð sig til þátttöku en aðrir íbúar Mosfellsbæjar geta skráð sig til þátttöku á heimasíðu Mosfellsbæjar sjá nánar í frétt: https://www.mos.is/forsida/frettir/frett/2021/09/09/Menntastefna-Mosfellsbaejar/ Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig hið fyrsta og nýta tækifærið til að hafa áhrifa á menntastefnu Mosfellsbæjar.
Meira ...

Veðrið þri. 28.sep.

28/09/21
Líkt fram hefur komið sl ár, þá er tilgangurinn með „nýju“ veður leiðbeiningunum að fólk geti fylgst með viðvörunum frá Veðurstofu Íslands í gegnum fjölmiðla, þar sem allir fjölmiðlar greina frá lita viðvörunum og fylgt þeim eftir út frá þeim lit sem Veðurstofan gefur út. Fólk getur þá skipulagt sig út frá leiðbeiningunum í sínu starfi, hvort sem um ræðir starfsfólk skóla eða foreldra / forráðamenn. í dag er gul viðvörun seinni partinn vindur um 16 m á sek og grenjandi rigning en ekki hálka, m.ö.o. skólastarf og frístundastarf á að geta gengið með eðlilegum hætti en þau börn sem ganga heim úr frístund kl 16 – það er á ábyrgð forráðamanna að láta vita ef þau eiga ekki að ganga heim heldur verði sótt. https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi
Meira ...

Skóladagatal Frístundar

23/09/21
Núna er skóladagatal Frístundar komið inn á heimasíðuna þar sem sjá má á hvaða leyfisdögum þar sé opið og hvenær þurfi sérskráningu t.d. í vetrar-, jóla- og páskaleyfum. http://www.lagafellsskoli.is/library/Skoladagatol/Fr%c3%adstundadagatal%2021-22.xls.pdf
Meira ...

FORELDRAR ATHUGIÐ. veðrið þri. 21/9.

21/09/21
Appelsíngulviðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu frá 13:30 - 17:00 Forsjáraðilar þurfa að meta sjálfir hvort fylgja þurfi börnum úr skóla eða frístundastarfi. Við appelsínu gula veðurviðvörun er meiri þörf á að fylgja börnum úr skólanum. Rétt er að hafa í huga að oft getur verið hvasst í efri byggðum. Ef hálka eða ofankoma fylgir veðrinu aukast líkur á að þörf sé fyrir fylgd. Mikilvægt er að forsjáraðilar hafi í huga að röskun getur einnig orðið á frístundastarfi og skipulögðum æfingum í lok skóladags og séu tilbúnir að sækja börn í skóla og frístundastarf ef þess gerist þörf.sjá nánar https://www.facebook.com/Slokkvilidid
Meira ...

Seinni bólusetning nemenda sem eru fæddir 2006 - ág. 2009

07/09/21
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu stefnir á að bólusetja 12-15 ára börnin með seinni skammtinum á mánudaginn 13. sep. og þriðjudaginn 14. sep. í Laugardalshöllinni. Þetta gekk mjög vel síðast og því stefna þau á að nota bara sama fyrirkomulag. Í viðhengi eru sömu upplýsingar og síðast bara með nýjum dagsetningum
Meira ...

Bólusetningar nemenda í 7. - 10.bekk

09/08/21
Bólusetningar 12-15 ára barna á höfuðborgarsvæðinu eru fyrirhugaðar 23. og 24. ágúst í Laugardalshöll. Foreldrar sem þiggja bólusetningu fyrir börn sín eru beðnir um að fylgja börnum sínum og þannig veita þeir samþykki fyrir bólusetningunni. Foreldrar munu sitja við hlið barna sinna í bólusetningunni. Boð verða ekki send en foreldrar eru beðnir um að mæta með börnum sínum eftir eftirfarandi skipulagi:
Meira ...

Skólaslit vorið 2021

04/06/21
Skólaslit í Lágafellsskóla vorið 2021 Skólaslit verða hjá 1. – 9. bekk skólans miðvikudaginn 9. júní. Nemendur mæta til stuttrar athafnar í stofuna sína, þar fá þeir afhentan vitnisburð og kveðja kennarann sinn. Skólaslitin eru án foreldra í þetta sinn. Kl. 10:00 - 10:30 1. - 4. bekkur Kl. 10:30 - 11:00 5. - 7. bekkur Kl. 11:00 - 11:30 8. - 9. bekkur Útskrift nemenda í 10. bekk verður í sal skólans, mánudaginn 7.júní kl:18:00.
Meira ...

Valáfangar fyrir 8. - 10. bekk 2021-22

26/05/21
Inn á vef skólans, undir skólastarfið, má finna þá valáfanga sem er í boði á næsta skólaári.
Meira ...

Aðalfundur foreldrafélags Lágafellsskóla verður haldinn rafrænt miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00

11/05/21
Aðalfundur foreldrafélags Lágafellsskóla verður haldinn rafrænt miðvikudaginn 19. maí nk. kl. 20:00.
Meira ...

Gjöf frá Foreldrafélagi Lágafellsskóla

03/05/21Gjöf frá Foreldrafélagi Lágafellsskóla
Enn og aftur hefur bókasafnið móttekið góða peningagjöf frá Foreldrafélagi skólans. Að þessu sinni var mikið keypt af borðspilum og einnig bækur. Á myndinni má sjá hluta af þessum gjöfum sem munu nýtast nemendum á öllum aldursstigum.
Meira ...

Síða 2 af 3

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira