logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Skólaþing mánudaginn 11.október

04/10/2021

Skólaþing mánudaginn 11.október

Í tengslum við endurskoðun á menntastefnu Mosfellsbæjar verður haldið skólaþing mánudaginn 11.október.  Skólaþingið verður haldið í Helgafellsskóla og skipulega tekið á móti nemendum, starfsmönnum og foreldrum ásamt öðrum þeim sem áhuga hafa á að taka þátt í verkefninu.

Nemendur kjósa fulltrúa úr sínum röðum, starfsmenn og foreldrar hafa fengið hlekk á skráningarform þar sem þeir geta skráð sig til þátttöku en aðrir íbúar Mosfellsbæjar geta skráð sig til þátttöku á heimasíðu Mosfellsbæjar sjá nánar í frétt: https://www.mos.is/forsida/frettir/frett/2021/09/09/Menntastefna-Mosfellsbaejar/

Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig hið fyrsta og nýta tækifærið til að hafa áhrifa á menntastefnu Mosfellsbæjar.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira