Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Lestrarátakið páskaeggjalestur
24/03/2022Lestrarátakið páskaeggjalestur er hafið og stendur næstu 14 daga eða frá miðvikudeginum 23. mars til og með þriðjudagsins 5. apríl. Það gengur út á það að nemendur skrá þær mínútur sem þeir lesa heima og í skólanum á skráningarblað sitt en jafnframt velja þeir hjá kennara lestrarmiða (páskaegg) og skrá á hann þær mínútur sem þeir lesa næstu sjö daga. Því næst klippa þeir lestrarmiðann út og festa hann svo upp í gluggann í bekkjarstofunni. Þetta gera þeir á tvisvar þar til lestrarátakinu lýkur og í lok átaksins á hver nemandi tvö páskaegg í glugganum.
Þegar lestrarátakinu lýkur (í lok dags þann 5. apríl) tekur nemandinn saman hversu margar mínútur hann las á þessum 14 dögum og skilar skráningarblaðinu til umsjónarkennara (íslenskukennara á unglingastigi). Umsjónarkennari tekur saman heildartölu bekkjar og kemur henni til Kristínar á bókasafninu eigi síðar en 6. apríl. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal en sá bekkur sem les hvað mest á hverju stigi (miðað er við meðaltal lesinna mínútna) fær óvæntan glaðning í lokin :-)