Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Bolludagur og öskudagur
18/02/2020
Bolludagur og öskudagur
24. og 26. febrúar
Hefð er fyrir því að nemendur megi koma með bollu í skólann til að borða í nestistíma á bolludag sem nú ber upp á mánudag 24. febrúar. Vinsamlega athugið að koma ekki með bollur sem hnetur eru í.
Miðvikudaginn 26. febrúar er öskudagur. Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að koma í búningum í skólann. Stundatafla verður brotin upp með öskudagsskemmtun. Sund fellur niður þennan dag og ekki þarf að mæta með leikfimiföt. Nemendur í 2.bekk byrja daginn kl. 8:10 á Höfðabergi.
Í hádegismat á öskudag verður pizza. Þeir sem ekki eru skráðir í mötuneytið geta skráð sig sérstaklega þennan dag og er verðið 600 kr. Skrifstofa skólans tekur við skráningu og greiðslu vegna nemenda í 3. -10. bekk en umsjónarkennarar í Höfðabergi fyrir 1. – 2. bekk. Greiðsla þarf að berast föstudag 21. febrúar.
Kennslu í 3.-10. bekk lýkur kl. 13:15 á öskudag en kl. 13:20 hjá 1. – 2. bekk á Höfðabergi. Mælst hefur verið til þess að fyrirtæki í Mosfellsbæ byrji ekki að gefa sælgæti/gjafir fyrr en eftir þennan tíma.
ATH. Ekki verða veitt leyfi fyrir nemendur á öskudag, nema rík ástæða sé til.
Nemendur sem skráðir eru í Frístundasel fara þangað að lokinni kennslu.
Þeir foreldrar sem vilja fá leyfi fyrir börn í frístundaseli þurfa að hafa samband við Daníel, forstöðumann frístundasels, í síma 896-2682 eða í tölvupósti fristund@lagafellsskoli.is fyrir kl. 12:00 á öskudaginn.
Með góðum kveðjum.
Starfsmenn Lágafellsskóla