Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
First Lego League keppnin
13/11/2019Laugardaginn 9. nóvember fór fram í Háskólabíói keppnin First Lego League. Þar kepptu lið frá 16 grunnskólum og sendi Lágafellsskóli sitt lið til þátttöku en þeir nemendur hafa verið í Legó- vali (Vélmennaforritun) í haust.
Margvísleg markmið liggja á bak við valið; forritun, útsjónarsemi, samvinna og leita lausna og upplýsinga.
Veitt voru verðlaun fyrir fjórar keppnisgreinar, fyrir utan sigurverðlaunin.
Liðið okkar, Cityciborgs gerði sér lítið fyrir og fékk bikar fyrir bestu hönnun og forritun á vélmenni og var einnig tilnefnt fyrir bestu liðsheildina, stórkostlegur árangur!
Lið skólans skipuðu þau Hrannar 10.HP, Kristján 10.HP, Thelma Huld 8.SÓÞ, Dagbjört Erla 8.ÝÞ, Bergur Páll 8.SÓÞ, Þór Biednam 8.SÓÞ, Matteusz Wiktor 8.SÓÞ, Jamie Freyr 8.SÓÞ og Mikolas Bergþór 8.SÓÞ.
Kennarar hópsins eru Iðunn Ómarsdóttir og Ýr Þórðardóttir.
Til hamingju Cityciborgs