Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Laus störf við skólann
08/02/2019Laus störf í Lágafellsskóla
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt leikskóladeildum 5 ára barna.
Við auglýsum lausar stöður:
· Kennarastaða á unglingastigi, 70% starfshlutfall. Aðalkennslugrein danska auk nokkurra tíma í stærðfræði. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í síðasta lagi 1. apríl.
Menntunar- og hæfnikröfur:
· Leyfisbréf grunnskólakennara
· Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
· Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
· Áhugi á starfi með börnum
· Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
· Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Einnig þurfum við að ráða:
· Skólaliða í ræstingu, gæslu og aðstoð í mötuneyti. Vinnutími 07:50 - 17:00. Til greina kemur að ráða í lægra starfshlutfall.
Menntunar- og hæfnikröfur:
· Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
· Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
· Góð færni í samvinnu og samskiptum
· Áhugi á starfi með börnum
· Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
· Góð íslenskukunnátta
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 5259200/8968230.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur
um stöðurnar er til 2. mars 2019.
Ráðið er í öll störf óháð kyni.