Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Laus störf hjá Lágafellsskóla skólaárið 2018-19
10/08/2018Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
Má bjóða þér að vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
Laus störf til umsóknar:
Umsjónarkennarastaða á miðstigi, 100% starfshlutfall.
Umsjónarkennarastaða á unglingastigi, 100% starfshlutfall, tímabundin staða til eins árs. Kennslugreinar íslenska og náttúrufræði.
Íslensku- og stærðfræðikennsla á unglingastigi, 60% starfshlutfall.
Menntunar - og hæfnikröfur í kennarastörf:
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
- Áhugi á starfi með börnum
- Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta
Ennfremur vantar okkur:
Leikskólakennara til starfa á 5 ára deildum Höfðabergs. Starfshlutfall 100%.
Skólaliða í Höfðaberg. Vinnutími 07:50 - 13:00. Helstu verkefni eru aðstoð, gæsla og létt ræsting
Stuðningsfulltrúa í 55% -100% starfshlutfall. Helstu verkefni eru stuðningur við börn í leik og starfi ásamt gæslu.
Frístundaleiðbeinendur. Vinnutími frá 13:00 -16:00/17:00. Möguleiki á að vinna einstaka daga. Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.
Menntunar - og hæfnikröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur háskólamenntun æskileg. Aðrar umsóknir skoðaðar ef ekki fæst fólk er uppfyllir menntunarkröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (skólaliðar, stuðningsfulltrúar og frístundaleiðbeinendur)
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Mjög góð færni í samvinnu og samskiptum
- Áhugi á starfi með börnum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 24. ágúst 2018.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.