Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Laus störf hjá Lágafellsskóla skólaárið 2018-19
09/05/2018Laus störf í Lágafellsskóla skólaárið 2018-2019
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi? Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum? Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
KENNARAR ÓSKAST Í EFTIRTALIN STÖRF:
- Kennari í náms- og atferlismótunarver (100% framtíðarstaða) – menntun í sérkennslufræðum æskileg sem og reynsla af atferlismótun
- Kennari í sérkennslu (70% - 100% framtíðarstaða), menntun í sérkennslufræðum æskileg
- Kennari á unglingastig – kennslugreinar íslenska og stærðfræði
- Umsjónarkennarar á yngsta og miðstig (80% - 100% framtíðarstöður)
- Tónmenntakennari ( 100%) framtíðarstaða
Menntunar- og hæfnikröfur í kennarastörf:
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
- Áhugi á starfi með börnum
- Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
EINNIG VERÐUR RÁÐIÐ Í EFTIRTALIN STÖRF:
- Atferlisfræðingur eða aðili með uppeldisfræðimenntun og góða þekkingu og reynslu af atferlismótandi aðferðum, t.d. sálfræðingur, þroskaþjálfi (í 70-100% starf)
- Skólaliða í Höfðaberg. Vinnutími 07:50 - 13:00 (aðstoð, gæsla og létt ræsting)
- Stuðningsfulltrúa (í 60-100% starf)
- Frístundaleiðbeinendur (hlutastarf) Vinnutími frá 13:00 -16:00/17:00. Möguleiki á að vinna einstaka daga.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Menntun samkvæmt gildandi samningum, ef ekki fæst fólk með réttindi er annað skoðað
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Áhugi á starfi með börnum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 23. maí 2018.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja