logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Fókus hópurinn í heimsókn

28/02/2018
Fókus hópurinn sem tekur þátt í Evróvision undankeppninni hérlendis kom í heimsókn til okkar og tóku lagið sitt Aldrei gefast upp bæði á íslensku og ensku. Hópnum var vel tekið af nemendum skólans sem flest öllu kunnu lagið og sungu hressilega með. Hópurinn samanstendur af 5 söngvurum sem eru Eiríkur Þór Hafdal, Karitas Harpa Davíðsdóttir, Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Rósa Björg Ómarsdóttir og Sigurjón Örn Böðvarsson. Fyrir hópinn tengist lagið því að finna ástríðuna í lífi sínu og fylgja draumum sínum alla leið. Það er ekki alltaf auðvelt og oft sem maður fer að efast en þá þarf maður að hafa gott fólk í kringum sig og finna kraftinn til að halda áfram. Hópurinn er í  dag orðnir mjög nánir vinir og söngsystkini sem reyna að hafa jákvæðni, húmor og vináttu að leiðarljósi og hvetja hvort annað til að berjast fyrir draumum okkar.
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira