Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Gjaldfrjáls grunnskóli í Mosfellsbæ
15/08/2017Bæjarráð hefur samþykkt að frá og með hausti 2017 verði öllum börnum í grunnskólum Mosfellsbæjar
veittur hluti nauðsynlegra námsgagna þeim að kostnaðarlausu (s.s. ritföng, reikningsbækur,
stílabækur, límstifti, skæri, plast/teygjumöppur og einfaldir vasareiknar). Mosfellsbær tók þátt í
örútboði á vegum Ríkiskaupa og skilað það mjög hagstæðu verði á námsgögnum.
Námsögn verða afhent nemendum í upphafi skólaárs. Til að hlúa að umhverfinu okkar og fara vel með
sameiginlega sjóði sveitarfélagsins þá biðjum við ykkur um að leggja okkur lið og athuga hvaða
námsgögn eru til á heimilinu frá fyrri árum. Börnin eru beðin um að koma með í skólann þau gögn
sem hægt er nýta áfram (s.s möppur, pappír, stílabækur/reikningsbækur, plastvasa og fleira). Það sem
upp á vantar af námsgögnum mun skólinn bæta við. Ritföng sem þegar eru til er ágætt að eiga
heimavið.
Eftirfarandi vinnureglur gilda um gjaldfrjáls námsgögn í grunnskólum Mosfellsbæjar:
Gagnalistar eru til staðar á heimasíðum skólanna - þar er hægt að sjá hvað hver
bekkur/árgangur þarf af nauðsynlegum námsgögnum. Velji foreldrar önnur innkaup á
gögnum en tilgreind eru í gagnalistum fellur sá kostnaður ekki innan námsgagna sem skólinn
afhendir.
Endurnýjun á námsgögnum og ritföngum fer fram að meðaltali á þriggja ára fresti.
Undantekning er þó skriffæri (blýantar, skriftarpennar), strokleður og límstifti sem
endurnýjast árlega.
Þeir nemendur sem eru að hefja nám í 1. bekk fá ný námsgögn þar sem þeir eru að hefja sína
skólagöngu.
Námgögn eins og stíla- og reikningsbækur, sögu- og verkefnabækur og möppur eru að öllu
jöfnu geymd í skólanum en fara heim með nemendum ef um heimanám er að ræða. Gert er
ráð fyrir að á heimilum séu til nauðsynleg skriffæri og litir.
Námsgögn verða ýmist sérmerkt nemanda eða verða í bekkjar-, árganga-, stofu- og eða
skólasettum.
Eftir því sem líður á námið í grunnskóla bætast við námsgögn og munu þau verða afhent eftir
þörfum.
Kostnaður vegna valáfanga er óbreyttur.
Innan gjaldfrjálsra námsgagna eru ekki skólatöskur, pennaveski, íþrótta- og sundföt og
flóknari reiknivélar (nýtast áfram í framhaldsskóla).
Týnist eða eyðileggist námsgögn vegna slæmrar meðferðar hjá nemendum eru foreldrar
ábyrgir fyrir því að námsgögn séu endurnýjuð.
Nýtt fyrirkomulag á gjaldfrjálsum grunnskóla mun taka tíma að móta. Við óskum eftir sem bestri
samvinnu í anda umhverfisverndar við endurnýtingu og meðferð námsgagna.
Með góðri kveðju,
Linda Udengård, framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs
Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri Lágafellsskóla