Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Laus störf við Lágafellsskóla veturinn 2017-2018
28/07/2017Lágafellsskóli Mosfellsbæ
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
Kennarastöður – ráðning frá 1. ágúst
- Umsjónarkennsla á yngsta stigi. Starfshlutfall 88%, tímabundið til 1. mars 2018 vegna fæðingarorlofs
- Umsjónarkennsla á miðstigi
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
- Áhugi á starfi með börnum
- Áhugi á starfsþróun og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Þroskaþjálfi óskast í 50 – 75% starfshlutfall. Meginverkefni viðkomandi verða í leikskólahluta Höfðabergs. Ráðning frá 1. ágúst eða samkvæmt samkomulagi.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar
- Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Þekking og reynsla af atferlismótun æskileg
Ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa kemur til greina að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfið.
Skólaliði
Helstu verkefni eru ræsting, gæsla með nemendum og aðstoð í matsal nemenda. Daglegur vinnutími frá kl. 07:50 –16:00. Ráðning frá 15. ágúst.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta.
Frístundaleiðbeinendur óskast í Frístundsel Lágafellsskóla
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk. Um hlutastörf er að ræða og vinnutími frá kl. 13:00 – 17:00 en möguleiki er á styttri vinnutíma.
Ráðning frá 21. ágúst
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Góð færni í samskiptum
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Góð íslenskukunnátta
Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar um störfin veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200 eða 8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist með tölvupósti á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur um störfin er til og með 11. ágúst 2017.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um