Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Laus störf við Lágafellsskóla veturinn 2017-2018
16/06/2017Lágafellsskóli Mosfellsbæ
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
Lausar stöður frá 1. ágúst 2017
Deildarstjóri óskast í stjórnendateymi skólans
Meginverkefni viðkomandi er þátttaka í þriggja manna stjórnunarteymi í Höfðabergi með ábyrgð á faglegu starfi grunnskólahlutans. Viðkomandi er jafnframt hluti af stjórnendateymi skólans.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Grunnskólakennaramenntun er skilyrði
- Framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg sem og reynsla af sambærilegu starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
- Leiðtogahæfileikar eru nauðsynlegir
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Áhugi á starfsþróun, sem og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi er skilyrði
Kennarar óskast í eftirtaldar stöður
Umsjónarkennslu á yngsta og miðstig, um 80 – 100% stöður er að ræða Umsjónarkennslu á yngsta stig, tímabundið til 1. mars 2018 vegna fæðingarorlofs
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskipum
- Góð færni í samvinnu og samskipum.
- Áhugi á starfi með börnum
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar
- Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
- Þekking og reynsla af atferlismótun æskileg
Ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa kemur til greina að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfið.
Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóra í síma 5259200 eða 8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila berist með tölvupósti á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur um störfin er til 30. júní 2017.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um