Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Laus störf við Lágafellsskóla
12/05/2017
Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar frá 1.ágúst nema annað sér tekið fram:
- Umsjónarkennsla á yngsta og miðsstigi
- Afleysing í umsjónarkennslu á yngsta stigi til 1. mars 2018 vegna fæðingarorlofs
- Íslenskukennsla á unglingastigi. Tímabundin ráðning til eins árs
- Enskukennsla á unglingastigi, afleysing til áramóta vegna fæðingarorlofs
- Dönskukennsla í unglingadeild, 50 – 60% ráðning
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð færni í samvinnu og samskiptum
- Áhugi á starfi með börnum
- Áhugi á starfsþróun og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
- Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
Deildarstjórastaða á leikskóladeild 5 ára barna í Höfðabergi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leikskólakennaranám
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Áhugi á starfi með börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Þolinmæði og þrautseigja
- Góð íslenskukunnátta
Þroskaþjálfastaða
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa kemur til greina að ráða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfið.
Öll störf eru framtíðarstörf nema annað sé tekið fram.
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 26. maí 2017.
Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.