Fréttasafn
2024
febrúar, mars, ágúst, september.
2023
janúar, mars, maí, september, október, nóvember, desember.
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Laus störf í Lágafellsskóla
15/12/2016Má bjóða þér að vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi, ásamt 5 ára leikskóladeildum.
Stuðningsfulltrúi óskast
Meginverkefni er aðstoð við nemendur í leik og starfi. Sérstaklega er leitað að karlmanni til starfa.Vinnutími frá kl. 08:00. Möguleiki á vinnu í frístundaseli e.h. og þar með 100% starfshlutfalli.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
• Áhugi á að vinna með börnum.
• Frumkvæði og sjálfstæði.
• Góð færni í samskiptum
• Stundvísi
• Góð íslenskukunnátta
Laus staða á leikskóladeild 5 ára barna í Höfðabergi, útibúi skólans
Starfshlutfall 50% og vinnutími 08:30 – 12:30.Menntunar- og hæfnikröfur:
- Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun æskileg
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Áhugi og metnaður á starfi með börnum er skilyrði
- Jákvæðni og góð hæfni í samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta
Frístundaleiðbeinendur óskast í Frístundsel Lágafellsskóla
Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.Um hlutastörf er að ræða og vinnutími frá kl. 13:00 – 17:00 en möguleiki er á styttri vinnutíma.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Þolinmæði og þrautseigja
Ráðið verður í stöðurnar frá 9. janúar 2017.
Laun vegna auglýstra starfa eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 525 9200 / 896 8230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is
Umsóknarfrestur framlengdur til 6. janúar 2017