Mötuneyti
Áskrift í mötuneyti
Sækja þarf um áskrift í mötuneyti í gegnum Völu í síðasta lagi 20. hvers mánaðar svo nemandinn komist í áskrift mánuðinn á eftir.
Áskrift að mötuneyti greiðist fyrirfram einn mánuð í senn. Sé áskrift ekki sagt upp fyrir 20. dag síðasta mánaðar áskriftartímabilsins endurnýjast hún sjálfkrafa.
- Skráning og uppsögn fer fram í gegnum Völu skráningarkerfi um mötuneyti og frístund.
Hægt er að óska eftir áskrift í grænmetisfæði (ekki kjöt) eða veganfæði (engar dýraafurðir) og er það valið sérstaklega inn á umsókninni.
Ef nemandi er með fæðuóþol eða ofnæmi verður að skila inn vottorði frá lækni þess efnis til að nemandi fái annað fæði eldað fyrir sig í skólanum. Vottorði skal skila inn í upphafi hvers skólaárs.
Áhersla á fjölbreyttar máltíðir á matseðli
Nemendum stendur til boða hádegisverður, kjöt- eða fiskiréttur, súpur, mjölkurvörur, brauðmeti og ávextir. Matseðillinn er unninn samkvæmt manneldismarkmiðum fyrir Íslendinga og er lögð áhersla á að hafa máltíðirnar fjölbreyttar. Hugað er vandlega að næringargildi og almennri hollustu.
Einnig er hægt að kaupa samlokur í mötuneytinu og eru þar samlokugrill og örbylgjuofn til afnota fyrir nemendur. Að sjálfsögðu geta nemendur komið með nestispakka að heiman og er mötuneytið aðeins valkostur og viðbót við þá þjónustu sem skólinn veitir.
Ávaxtabitinn inniheldur ferska ávexti daglega.
Hægt er að sækja um ávaxtabita fyrir börn í 1 .- 7. bekk í Lágafellsskóla í gegnum Völu
Þegar komið er inn í Völu má finna ávextabita undir aukavörum.
Gjaldskrá fyrir mötuneyti grunnskóla Mosfellsbæjar:
- Hver máltíð 495 kr frá 1/1 2024.
- Ávaxtabiti 142 kr frá 1/1 2024.
Greitt er áskriftargjald fyrir einn mánuð í senn og fer mánaðarverð eftir fjölda nemendadaga sjá nánar í reglum um mötuneytisáskrift.
Verð frá 1/1 2024
- Máltíð = 495 kr. (rukkað er fyrir mánuð í einu).
- Ávaxtabiti = 142 kr. á dag (rukkað er fyrir mánuð í einu).
- Samlokur með osti eða áleggi = 200 kr. (seldar í lausasölu).
- Panini með áleggi og sósu = 350 kr. (seldar í lausasölu).
- Ávextir í lausu fyrir nemendur í 8.-10.bekk = 100 kr.
- Við erum ekki í útifötum í matsalnum.
- Við förum í röð og ryðjumst ekki.
- Við sýnum starfsfólki virðingu og erum kurteis.
- Við tölum hljóðlega saman og forðumst óþarfa hávaða.
- Við göngum vel frá diskum, hnífapörum, glösum og matarleifum.
- Við erum ekki með höfuðföt eða í yfirhöfnum í matsalnum.
Hvarð er gert þegar reglur í mötuneyti eru brotnar?
Yngri deild:
- Umsjónarkennari ræðir við barnið (þrisvar).
- Talað við foreldra viðkomandi barns og deildarstjóra.
- Viðkomandi vísað úr matsal á matmálstíma og snæðir einn undir eftirliti að afloknum hefðbundnum matmálstíma.
Eldri deild:
- Umsjónarkennari ræðir við barnið (þrisvar).
- Talað við foreldra viðkomandi barns og deildarstjóra.
- Barnið látið ganga frá í mötuneyti.
- Viðkomandi vísað úr matsal á matmálstíma og snæðir einn undir eftirliti að afloknum hefðbundnum matmálstíma.