Gagnalisti
Nauðsynleg námsgögn verða greidd og keypt af bæjarfélaginu skólaárið 2018-2019. Vinsamlega kynnið ykkur þær reglur sem gilda um námsgagnakaupin með því að smella hér
1.9.2020
Ágætu foreldrar/forráðamenn
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti árið 2017 að öllum börnum í grunnskólum Mosfellsbæjar verði veittur hluti nauðsynlegra námsgagna þeim að kostnaðarlausu (s.s. ritföng, reikningsbækur, stílabækur, límstifti, skæri, plast/teygjumöppur og einfaldir vasareiknar).
Námsögn verða afhent nemendum í upphafi skólaárs. Til að hlúa að umhverfinu okkar og fara vel með sameiginlega sjóði sveitarfélagsins þá biðjum við ykkur um að leggja okkur lið og athuga hvaða námsgögn eru til á heimilinu frá fyrri árum. Börnin eru beðin um að koma með í skólann þau gögn sem hægt er nýta áfram (s.s möppur, pappír, stílabækur/reikningsbækur, plastvasa og fleira). Það sem upp á vantar af námsgögnum mun skólinn bæta við. Ritföng sem þegar eru til er ágætt að eiga heimavið.
Eftirfarandi vinnureglur gilda um gjaldfrjáls námsgögn í grunnskólum Mosfellsbæjar:
- Gagnalistar liggja til grundvallar kaupum skólanna á námsgögnum. Vilji foreldrar önnur innkaup á gögnum en tilgreind eru í gagnalistum fellur sá kostnaður ekki innan námsgagna sem skólinn afhendir. Foreldrar sem óska eftir að kaupa námsgögn á eigin kostnað geta snúið sér til deildarstjóra verkefna asta@lagafellsskoli.is og fengið upplýsingar.
- Endurnýjun á námsgögnum og ritföngum fer fram að meðaltali á þriggja ára fresti. Undantekning er þó skriffæri (blýantar, skriftarpennar), strokleður og límstifti sem endurnýjast árlega. Hver nemandi fær fjóra blýanta og tvö strokleður, kúlupenna og/eða filtskrifpenna í þeim árgöngum sem við á. Litir og yddarar eru sameiginlegir og verða geymdir í kennslustofum. Nemendur í 8.-10.bekk fá veturinn 2020 skrúfblýant, pakka af 0,7 blýi, 1 blýant, 1 penna og 2 strokleður. Ef þessi gögn týnast eða endast ekki út veturinn þá ber foreldrum að endurnýja viðkomandi búnað.
- Þeir nemendur sem eru að hefja nám í 1. bekk fá ný námsgögn þar sem þeir eru að hefja sína skólagöngu. Sömuleiðis fá nýir nemendur í öllum árgöngum afhent námsgögn í samræmi við gagnalista.
- Námsgögn eins og stíla- og reikningsbækur, sögu- og verkefnabækur og möppur eru að öllu jöfnu geymd í skólanum en fara heim með nemendum ef um heimanám er að ræða. Gert er ráð fyrir að á heimilum séu til nauðsynleg skriffæri og litir til að sinna heimanámi.
- Námsgögn verða ýmist sérmerkt nemanda eða verða í bekkjar-, árganga-, stofu- og eða skólasettum.
- Eftir því sem líður á námið í grunnskóla bætast við námsgögn og munu þau verða afhent eftir þörfum.
- Kostnaður vegna valáfanga er óbreyttur.
- Innan gjaldfrjálsra námsgagna eru ekki skólatöskur, pennaveski, íþrótta- og sundföt og flóknari reiknivélar (nýtast áfram í framhaldsskóla).
- Athugið að týnist, nýtist að fullu eða eyðileggist námsgögn hjá nemendum eru foreldrar ábyrgir fyrir því að námsgögn séu endurnýjuð.
- Nemendur í núverandi 8.-10.bekk fengu í 7.bekk afhentar 5 þykkar plastmöppur (4 cm) með teygju og eiga að koma með þær aftur í skólann. Ef þær hafa týnst eða skemmst frá sl. skólaári þurfa forráðamenn að útvega nýjar. Gul samfélagsfræði, rauð íslenska, græn náttúrufræði, blá stærðfræði, hvít/glær/grá enska og appelsínugul danska.
- Allir nemendur sem eiga heilar plastmöppur með lituðu baki komi með þær í skólann.
Nýtt fyrirkomulag á gjaldfrjálsum grunnskóla mun taka tíma að móta. Við óskum eftir sem bestri samvinnu í anda umhverfisverndar við endurnýtingu og meðferð námsgagna.
Með góðri kveðju,
Lísa Greipsson, skólastjóri Lágafellsskóla