logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Tryggingar á skólatíma

 

Skólabörn í Mosfellsbæ eru tryggð hjá TM tryggingum

Frá og með 1. janúar 2024 munu TM tryggingar sjá um að slysatryggja skólabörn í Mosfellsbæ.

 

Um slysatryggingu skólabarna. 

Öll börn, yngri en 18 ára sem eru búsett í Mosfellsbæ og eru skráð í grunnskóla (gildir um slys sem verða á skólatíma, á skólalóð eða í ferð á vegum skólans), leikskóla, dagskóla, á sumarnámskeið, á gæsluleikvelli og í skipulögðu tómstundastarfi félagsmiðstöðva eru nú sjálfkrafa slysatryggð hjá TM tryggingum

Tjón skal tilkynna á vefsíðu TM https://www.tm.is/tilkynna-tjon.

Upplýsingar um stöðu mála og tryggingavernd má fá í þjónustuveri TM í síma 515-2000.

Í raun virkar þetta einfaldlega svona:

  1. 1. Foreldrar greiða sjálfir heimsóknir á heilsugæslu eða til sérfræðinga vegna slyssins (ekki skólinn eða Mosfellsbær)

  2. 2. Foreldrar fara með nóturnar á skrifstofu TM og fá endurgreitt. Hámark er greitt 400.000 kr úr hverju tjóni gegn framvísun kvittana. Engin eigin áhætta.

 

Allar frekari upplýsingar veittar hjá TM.

Katrínartúni 2, 105 Reykjavík
tm@tm.issími: 515-2000


 Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar
Þverholti 2
270 Mosfellsbær
sími: 525 6700

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira