Reglur um inniveru í frímínútum
Frímínútur og innivera
Nemandi í 1. - 2. bekk sem af einhverjum ástæðum þarf að vera inni í frímínútum dvelur á 5 ára deild skólans í umsjón starfsmanna deildarinnar.
Nemandi í 3. - 7. bekk sem af einhverjum ástæðum þarf að vera inni í frímínútum dvelur í stofu 253-254 í umsjón starfsmanna skólans.
Nemendur unglingadeildar, í 8. - 10. bekk, hafa val um hvort þeir eru inni eða úti.
Þurfi nemandi að vera inni í frímínútum skal skila beiðni frá
foreldri/forráðamanni þar sem ástæða inniverunnar er tilgreind. Heimilt er að
vera inni tvo daga eftir veikindi. Þurfi nemandi að vera lengur inni vegna
langvarandi veikinda eða meiðsla skal skila læknisvottorði.
Hamli veður útivist eru nemendur inni undir umsjón starfsmanna. Mikilvægt er að
nemendur séu klæddir í samræmi við veður og hafi með sér aukaföt að heiman ef
þurfa þykir.
Frímínútur í 1. - 2. bekk eru tvisvar yfir skóladaginn, kl: 9:40-10:00 og kl:
11:50-12:40.
Frímínútur í 3. - 7. bekk eru tvisvar yfir daginn, kl. 9:40-10:00 og kl.
11:20-11:40 eða kl. 11:40-12:00.
Frímínútur í 8. - 10. bekk eru þrisvar yfir daginn, kl. 9:35-9:55, 12:05-12:35
og 13:15-13:25
Kennarar, stuðningsfulltrúar og skólaliðar sinna gæslu í frímínútum.