Öryggismyndavélar
Öryggismyndavélar eru staðsettar í og við skólann. Fimm þeirra eru staðsettar utan húss og mynda skólalóðina og þá eru myndavélar í tölvustofum skólans og á göngum.
Myndavélarnar eru settar upp í öryggis- og eignarvörslutilgangi. Upptökur verða aðeins skoðaðar ef eignarspjöll koma upp og ekki nema tilefni sé til. Upptökurnar eru geymdar í 40 daga og aldrei afhentar öðrum en lögreglu og þá aðeins ef upp koma eignarspjöll.