Skólaslit í Lágafellsskóla vorið 2024
Skólaslit í Lágafellsskóla vorið 2024
Skólaslit verða hjá 1. – 9. bekk skólans fimmtudaginn 6. júní. Nemendur mæta til stuttrar athafnar í sal skólans. Að athöfn lokinni fara nemendur í sína stofu með umsjónarkennara, fá afhentan vitnisburð og kveðja kennara sinn. Nemendur fara heim að þessu loknu. Foreldrar eru hjartanlega velkomnir.
Skólaslit í sal Lágafellsskóla verða sem hér segir:
Kl. 09:00 1. bekkur
Kl. 09:30 2. bekkur
Kl. 10:00 3. bekkur
Kl. 10:30 4. bekkur
Kl. 11:00 5. bekkur
Kl. 11:30 6. bekkur
Kl. 12:00 7. bekkur
Kl. 12:30 8. og 9. bekkur
Útskrift nemenda í 10. bekk verður í sal skólans, mánudaginn 3. júní kl. 18:00.