Fréttasafn
2023
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Fréttir eftir mánuðum
Lestrarátakið páskaeggjalestur
24/03/22
Lestrarátakið páskaeggjalestur er hafið og stendur næstu 14 daga eða frá miðvikudeginum 23. mars til og með þriðjudagsins 5. apríl. Það gengur út á það að nemendur skrá þær mínútur sem þeir lesa heima og í skólanum á skráningarblað sitt en jafnframt velja þeir hjá kennara lestrarmiða (páskaegg) og skrá á hann þær mínútur sem þeir lesa næstu sjö daga.
Meira ...Vala - nýtt kerfi fyrir mötuneytisskráningu og ávaxtabita
16/03/22Óskað er eftir því að ALLIR sæki um áskrift að mötuneyti og eða ávextabita að nýju og færi þar inn réttar upplýsingar um t.d. óþol eða ofnæmi ef það á við, ásamt viðeigandi vottorði. Ath. að undir aukavörur er skráð fyrir ávaxtabitann hjá 1.-7.bekk.
Sótt er um áskrift í mötuneyti hér, https://matur.vala.is/umsokn/login
Athugið að áskrift færist svo sjálfkrafa á milli skólaára nema áskrift sé sagt upp.
Foreldrar /forráðamenn barna í Lágafellsskóla eru hvattir til að ljúka skráningu fyrir 25. mars
Meira ...Nemendur í Lágafellsskóla flokka óskilamuni.
07/03/22Lágafellsskóli er grænfánaskóli og vinnur eftir skrefunum sjö sem eru skref í átt að menntun til sjálfbærni. Eitt af skrefunum er að upplýsa fólk um hvað við erum að gera og fá aðra með. Óskilamunir safnast saman í okkar skóla eins og í öðrum skólum. Hvað verður um allt það sem týnist í skólanum? Ef hluturinn er merktur kemst hann yfirleitt alltaf til skila.
5.IRÍ tók málin í sínar hendur og flokkaði fjóra ruslapoka af óskilamunum sem höfðu safnast saman í geymslu skólans.
Í framhaldi að flokkun óskilamuna fór bekkurinn í hópa og hver hópur fékk eina spurningu til að vinna með.
5.IRÍ vonar að svörin verði til þess að foreldrar og börn passi hlutina sína betur.
Meira ...Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2022-2023
07/03/22Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2022-2023 fer fram á íbúagátt Mosfellsbæjar.
Meira ...