Fréttasafn
2023
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Fréttir eftir mánuðum
Öryggismyndavélar við Höfðaberg
27/09/19Vegna ítrekaðra skemmdarverka á skólalóð Höfðabergs hafa verið settar upp fjórar öryggismyndavélar sem mynda lóðina.
Myndavélarnar eru settar upp í öryggis- og eignarvörslutilgangi. Upptökur verða aðeins skoðaðar ef eignarspjöll koma upp og ekki nema tilefni sé til.
Upptökurnar eru geymdar í 40 daga og aldrei afhentar öðrum en lögreglu og þá aðeins ef upp koma eignarspjöll.
Meira ...Skýrsla um hagi og líðan nemanda í 5. - 7.bekk í Mosfellsbæ
26/09/19Skýrsla frá Rannsókn og greiningu sem kynnt var á fundi með foreldrum í Mosfellsbæ mið. 26/9 er nú komin inn á heimasíðu skólans undir flipanum Hagnýtt.
Meira ...Kynning á niðurstöðum könnunar um hagi og líðan ungs fólks í 5.-7. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar
23/09/19Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar býður til kynningarfundar mið. 25/9 kl. 17 í FMOS. Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsókn og greiningu kynnir niðurstöður á könnun sem gerð var í vor
Meira ...Skipulagsdagur þri. 24.sep.
23/09/19Þriðjudaginn 24.sep. er skipulags-og fræðsludagur í grunn-og leikskólum bæjarins. Af þeim sökum fellur öll kennsla niður í Lágafellsskóla þennan dag og frístund verður lokuð. Leikskóladeildir á Höfðabergi eru opnar til kl. 12 en lokaðar eftir hádegi.
Vetrarfrí verður síðan fim. 24. og fös. 25.okt. og skipulagsdagur mán. 28.okt. Frístund verður opin allan daginn í vetrarfríinu ef næg þátttaka fæst, sérskráning, og á venjulegum tíma á skipulagsdeginum kl.13:20 - 17:00 fyrir þá sem eru skráðir þar.
Meira ...Frístundabíll á milli skóla í Mosfellsbæ
13/09/19Sú nýbreytni verður í vetur að boðið verður upp á frístundabíl sem ekur á milli skólasvæða í Mosfellsbæ.
Ekinn er ákveðinn hringur þrisvar sinnum yfir daginn sem hefst kl. 14:00, 14:25 og 15:25. Mælst er til þess að yngstu börnin gangi fyrir í þessum frístundaakstri.
Meira ...