Fréttasafn
2023
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Fréttir eftir mánuðum
Lokaumferð Stóru upplestrarkeppninnar 2019
29/03/19
Stóra upplestrarkeppnin var haldin í 21. skipti í Mosfellsbæ fim. 28/3. Keppnin í ár var haldin í Varmárskóla. Til leiks voru mættir 10 framúrskarandi og hæfileikaríkir upplesarar frá Lágafells- og Varmárskóla. Keppendur fyrir hönd Lágafellsskóla voru: Alex Máni Hrannarsson 7.-IRÍ, Aron Valur Gunnlaugsson 7.-JLS, Eydís Ósk Sævarsdóttir 7.-IRÍ, Katrín Ósk Davíðsdóttir 7.-JÞ og Þórey Kristjana Björnsdóttir 7.-JLS. Þjálfari þeirra var Ýr Þórðardóttir
Meira ...Úrslit í lestrarátaki Ævars vísindamanns
29/03/19
Lestrarátaki Ævars vísindamanns lauk 1. mars og skiluðu nemendur Lágafellsskóla inn samtals 601 miðum sem þýðir að þeir lásu 1.803 bækur. Foreldrar voru líka duglegir að taka þátt en þeir skiluðu inn 51 miðum og lásu því samtals um 153 bækur :-)
Meira ...Áríðandi tilkynning - rútuakstur fös. 22/3
21/03/19Vegna verkfallsboðunar Eflingar og VR hjá rútufyrirtækjum föstudaginn 22. mars 2019 (frá miðnætti til miðnættis) mun allur skólaakstur falla niður í Mosfellsbæ þó með þeirri undantekningu að eftirfarandi ferðir verða eknar þar sem viðkomandi bílstjóri er ekki í þeim stéttarfélögum sem hafa boðað verkfall:
Akstur í skóla:
a) Morgunferðin úr Mosfellsdal og Helgafellshverfi í Varmárskóla
Akstur úr skóla:
b) Heimakstur frá Varmárskóla í Helgafellshverfi og Mosfellsdalinn kl. 13.45 og 16.00
Vert er að taka fram að það verður ekki ljóst fyrr en á miðnætti í kvöld hvort af verkfalli verður og eru aðstandendur beðnir um að fylgjast með fjölmiðlum og heimasíðu Mosfellsbæjar. Ef ekki kemur til verkfalls aka skólarútur eins og venjulega.
Meira ...Ákveðið að gera úttekt á ÖLLU skólahúsnæði bæjarins
21/03/19Bæjarstjórn leggur til að umhverfissviði verði falið að láta framkvæma skoðun á ÖLLU skólahúsnæði Mosfellsbæjar m.t.t. rakaskemmda og hugsanlegs örveruvaxtar tengdum þeim. Ef fram koma merki um örveruvöxt í þeirri skoðun verði strax gerð áætlun um úrbætur og ráðist í þær.
Meira ...Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2019-2020
11/03/19
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2019-2020 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar. Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. I nnritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl.
Meira ...Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar
08/03/19
Tólf glæslegir fulltrúar nemenda í 7.bekk kepptu fös. 8.mars um það hvaða fimm aðilar yrðu fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Varmárskóla fim. 28/3 kl. 17:30.
Meira ...