Fréttasafn
2023
2022
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júlí, ágúst, september, nóvember.
2021
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2020
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2019
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2018
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2017
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2016
janúar, febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september, október, nóvember, desember.
2015
Fréttir eftir árum
Skipulag fyrir Litlu jólin
17/12/19
Skipulag fyrir Litlu jólin. Ath. að jólaskemmtun elsta stigs er að kvöldi 19/12 og þau því komin í jólafrí 20/12. Skóli hefst aftur skv. stundaskrá mán. 6/1 2020 Gleðileg jól 🎅
Meira ...Skólahald mið. 11.des. með eðlilegum hætti
11/12/19Veðrið verður gengið niður þegar skólahald hefst á miðvikudagsmorgni 11/12, það verður rok en ekki þannig að röskun verði á skólastarfi og engar viðvaranir eru í gangi á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar röskun á skólahaldi.
Meira ...Skólahald v/veðurs sett inn 9.des kl. 21:00
09/12/19Allir heim fyrir klukkan 15 á morgun
Í Mosfellsbæ mun skóla-, frístunda og félagsmiðstöðvastarf raskast frá hádegi á morgun, þriðjudaginn 10. desember vegna óveðurs sem spáð er að gangi yfir höfuðborgarsvæðið.
Meira ...Vegna slæmrar veðurspár á morgun þá viljum við minna á verkferla vegna röskunar á skólastarfi.
09/12/19Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barna og bregðist við í samræmi við aðstæður hverju sinni.
Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir hverfum og svæðum.
Meira ...Jólakúlulestur 2019
06/12/19
Jólakúlulestri, lestrarátaki Lágafellsskóla sem stóð frá 11. -29. nóvember, lauk í síðustu viku. Nemendur fengu vikulega þátttökumiða, fyrst jólakúlu, svo jólabjöllu og loks jólasokk og skráðu á þá fjölda lesinna mínútna. Miðunum var svo raðað upp á vegg á þar til gert jólatré.
Meira ...First Lego League keppnin
13/11/19
Lágafellsskóli fékk verðlaun fyrir Bestu hönnun og forritun á vélmenni í First Lego keppninni. Liðið er skipað 9 nemendum í valfaginu Vélmennaforritun.
Meira ...Frábær mæting á kaffihúsakvöld elsta stigs
12/11/19
Það var frábær mæting á Kaffihúsakvöldið 😊 Anna Steinsen frá KVAN fór algjörlega á kostum og 10. bekkingar stóðu sig frábærlega í veitingasölunni og fóru fram úr væntingum í að hjálpa til við að ganga frá á eftir. Fyrirmyndarhópur þarna á ferð
Meira ...Heimsókn í Vísindasmiðjuna hjá 6._MLG
08/11/19Í október fór 6. MLG að heimsækja Vísindasmiðjuna í Háskólabíó. Heimsóknin var mjög skemmtileg og fræðandi en Vísindasmiðjan tekur virkan þátt í að vekja áhuga og dýpka skilning barna og unglinga á viðfangsefnum vísindanna.
Heimsóknin gekk vægast sagt mjög vel og voru krakkarnir mjög flottir, kurteisir, áhugasamir og stilltir og starfsmenn á safninu söguðst aldrei hafa hitt eins góðan hóp.
Meira ...Vetrarleyfi 24. 25. og 28. október og opnun þessa daga í frístund
18/10/19Fim. 24. og fös. 25. okt. er vetrarfrí í skólanum og því engin kennsla þessa daga. Mán. 28. okt. er skipulagsdagur starfsmanna í skólanum en nemendur eru í fríi.
Frístundaselið er opið dagana 24. og 25.október í vetrarleyfinu frá kl. 8.00 – 16.00 fyrir þá sem hafa nú þegar skráð sig þessa daga. Hinsvegar er Frístundaselið er opið á venjulegum tíma á starfsdeginum 28. október frá 13.20 – 17.00 fyrir alla nemendur í 1.-4. sem eru skráðir þar venjulega.
Minnum einnig á að enginn skólaakstur eða frístundarrúta er þessa daga 24. 25. og 28. október
Með kveðju
Sjórnendur Lágafellsskóla
Meira ...Skólahlaup UMSK 2019 – Mosfellsbæ
15/10/19
Skólahlaup UMSK 2019 var haldið í Mosfellsbæ miðvikudaginn 2. október. Góð þátttaka var í hlaupinu eða um 600 hlauparar. Keppt var í fjórum árgöngum þ.e. 4. -7. bekk. Fyrstu þrír í hverjum aldursflokki fengu viðurkenningu. Af 24 nem. sem komust á verðlaunapall átti Lágafellsskóli 11 :-)
Meira ...Síða 1 af 4