logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Þemadagar 23. - 24. nóvember

22/11/2022

Dagana 23. – 24. nóvember verða þemadagar í Lágafellsskóla þar sem hefðbundið skólastarf verður lagt til hliðar hjá 1. – 10. bekk.

Mæting hjá 1. - 7. bekk er kl. 8:30 í umsjónarstofur en gæsla verður fyrir þá nemendur í 1. - 4. bekk sem vilja koma fyrr eða frá kl. 8:10-8:30.

Mæting hjá 8. – 10.bekk er kl. 8:20 í umsjónarstofur.

Allri kennslu lýkur kl. 13:20 og tekur þá Frístund við hjá þeim nemendum          í 1. – 4. bekk sem þar eru skráðir.

 

Öll kennsla skv. stundaskrá fellur niður þessa daga og þurfa nemendur því ekki að mæta með íþrótta- og eða sundföt nema að kennarar sendi sérstakan póst um það.

 

Þemað sem unnið verður með er Lágafellsskóli í 20 ár og Mosfellsbær.

Lágafellsskóli átti 20 ára afmæli sl. vetur en vegna Covid var hátíðinni frestað.

Afmælishátíð með opnu húsi fyrir gesti og gangandi verður síðan þriðjudaginn 29. nóvember frá kl. 16:00-18:00 og kemur nánari dagskrá um hana síðar.

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira