logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Lestrarátakið páskaeggjalestur

24/03/2022

Lestrarátakið páskaeggjalestur er hafið og stendur næstu 14 daga eða frá miðvikudeginum 23. mars til og með þriðjudagsins 5. apríl. Það gengur út á það að nemendur skrá þær mínútur sem þeir lesa heima og í skólanum á skráningarblað sitt en jafnframt velja þeir hjá kennara lestrarmiða (páskaegg) og skrá á hann þær mínútur sem þeir lesa næstu sjö daga. Því næst klippa þeir lestrarmiðann út og festa hann svo upp í gluggann í bekkjarstofunni. Þetta gera þeir á tvisvar þar til lestrarátakinu lýkur og í lok átaksins á hver nemandi tvö páskaegg í glugganum.

Þegar lestrarátakinu lýkur (í lok dags þann 5. apríl) tekur nemandinn saman hversu margar mínútur hann las á þessum 14 dögum og skilar skráningarblaðinu til umsjónarkennara (íslenskukennara á unglingastigi). Umsjónarkennari tekur saman heildartölu bekkjar og kemur henni til Kristínar á bókasafninu eigi síðar en 6. apríl. Allir bekkir fá viðurkenningarskjal en sá bekkur sem les hvað mest á hverju stigi (miðað er við meðaltal lesinna mínútna) fær óvæntan glaðning í lokin :-)  

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira