logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2022-2023

07/03/2022

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2022-2023 fer fram á íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2022 fer fram frá 7.mars til 25.mars.

Skráning í frístund og mötuneyti 6 ára barna sem og nýrra nemenda vegna skólársins 2022-2023 verður auglýst sérstaklega síðar.

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1.apríl.  Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir aðsækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast á íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1.aprí.

Umsóknir fyrir skólavist utan lögheimilis endurnýjast ekki sjálfkrafa.  Mikilvægt er að  umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir.  Þau sem óska eftir aðstoða og leiðbeiningum vegna íbúagátarinnar geta snúið sér til þjónustuvers Mosfellsbæjar.

Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar.

Hér er hlekkur á fréttina eins og hún birtist á heimasíðu Mosfellsbæjar.

https://www.mos.is/forsida/frettir/frett/2022/03/04/Innritun-i-grunnskola-Mosfellsbaejar-fyrir-skolaarid-2022-2023/

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira