logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2021-2022

09/03/2021

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2021-2022 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2021 fer fram frá 8. mars til 26. mars

Skráning í frístund og mötuneyti 6 ára barna sem og nýrra nemenda vegna skólaársins 2021-2022 verður auglýst sérstaklega síðar.

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl.

Umsóknir fyrir skólavist utan lögheimilis endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir. Þau sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.

Fræðslu- og frístundasvið Mosfellsbæjar


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira