logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2020-21

10/03/2020

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2020-2021 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2020 fer fram frá 9. mars til 31. mars.

Innritun í frístundasel og mötuneyti 6 ára barna og nýrra nemenda vegna skólaársins 2020-2021 verður auglýst sérstaklega síðar.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir.

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl. Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

Þau sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.

- Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar

Sjá auglýsingu

 

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira