logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2019-2020

11/03/2019
Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2019-2020 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2019 fer fram frá 10. mars til 30. mars. 

Innritun í frístundasel og mötuneyti 6 ára barna og nýrra nemenda vegna skólaársins 2019-2020 verður auglýst sérstaklega síðar.

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. I nnritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem óska eftir að sækja grunnskóla í öðrum sveitarfélögum utan lögheimilis, skulu berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl. Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar eða smella hér.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita grunnskólarnir. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.


Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar
Til baka
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira