logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Námsefniskynningar haust 2018

03/09/2018

Kynningarfundir fyrir foreldra og forráðamenn nemenda í Lágafellsskóla verða haldnir sem hér segir:

1. bekkur mánudag 10. september kl. 17:15 – 21:00

2. bekkur miðvikudag 12. september kl. 08:10 – 09:10    

3. – 4. bekkur þriðjudag 11. september kl. 08:15 – 09:30

5. – 7. bekkur föstudag 14. september kl. 08:15 – 09:30

8. – 10. bekkur fimmtudag 13. september kl. 08:15 – 09:30


Morgunfundir vegna 3. – 10. bekkja hefjast í sal skólans með stuttu ávarpi skólastjóra. Fundir hjá 2.bekk verða úti á Höfðabergi.
Að kynningu lokinni munu umsjónarkennarar bekkja kynna skólastarf vetrarins í stofum sínum.

Boðið verður upp á gæslu fyrir nemendur í 2. – 4. bekk meðan kynningarfundir standa yfir. Sendar verða frekari upplýsingar um tilhögun gæslunnar.

Kennsla hefst kl. 09:15 í 2. bekk.
Nemendur í 3. – 7. bekk mæta í nestisstund kl. 09:30
Nemendur í í 8. – 10. bekk mæta kl. 09:55

Kennsla verður þó samkvæmt stundatöflu í list- og verkgreinum, íþróttum og sundi meðan fundir standa yfir.
Foreldrar eru hvattir til að geyma bílinn heima og koma fótgangandi vegna takmarkaðs fjölda bílastæða.
Stjórnendur Lágafellsskóla


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira