logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Dönskukennara vantar við skólann nú þegar

17/08/2018

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.

Má bjóða þér að vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.

Vegna forfalla vantar okkur dönskukennara á unglingastig í 60% starfshlutfall.

Menntunar- og hæfnikröfur í kennarastörf:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

 

 

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200 eða 8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

 

Umsóknarfrestur um stöðuna er til 2. september 2018.

 

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.

 

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira