logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf hjá Lágafellsskóla skólaárið 2018-19

10/08/2018

Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.

Má bjóða þér að vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum.

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.

Laus störf til umsóknar:

Umsjónarkennarastaða á miðstigi, 100% starfshlutfall.

Umsjónarkennarastaða á unglingastigi, 100% starfshlutfall, tímabundin staða til eins árs. Kennslugreinar íslenska og náttúrufræði.

Íslensku- og stærðfræðikennsla á unglingastigi, 60% starfshlutfall.

 

Menntunar - og hæfnikröfur í kennarastörf:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Mjög góð færni í samvinnu, samskiptum og teymisvinnu
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta

 

Ennfremur vantar okkur:

 

Leikskólakennara til starfa á 5 ára deildum Höfðabergs.  Starfshlutfall 100%.

Skólaliða í Höfðaberg. Vinnutími 07:50 - 13:00.  Helstu verkefni eru aðstoð, gæsla og létt ræsting

Stuðningsfulltrúa í 55% -100% starfshlutfall. Helstu verkefni eru stuðningur við börn í leik og starfi ásamt gæslu.

Frístundaleiðbeinendur.  Vinnutími frá 13:00 -16:00/17:00. Möguleiki á að vinna einstaka daga. Frístundaleiðbeinendur taka þátt í skipulagningu faglegs frístundastarfs og leiðbeina börnum í leik og starfi í samvinnu við samstarfsfólk.

Menntunar - og hæfnikröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur háskólamenntun æskileg. Aðrar umsóknir skoðaðar ef ekki fæst fólk er uppfyllir menntunarkröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi (skólaliðar, stuðningsfulltrúar og frístundaleiðbeinendur)
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Mjög góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta

 

Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

 

Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 24. ágúst 2018.

 

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira