logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf við Lágafellsskóla

14/11/2017
 Má bjóða þér að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi?  
Viltu vera hluti af góðum og öflugum starfsmannahópi sem vinnur saman að því að mæta ólíkum einstaklingum í krefjandi verkefnum?
Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. 
Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.  

Vegna forfalla eru eftirtaldar stöður lausar til umsóknar: 

Íslenskukennsla á unglingastigi, tímabundin ráðning út skólaárið vegna leyfis. Starfshlutfall 96% og er staðan laus nú þegar 

Umsjónarkennsla á miðstigi, tímabundin ráðning út skólaárið. Starfshlutfall 100% frá 1. janúar 

Dönskukennsla á unglingastigi. Starfshlutfall 65% og ráðning frá 1. janúar 

Menntunar- og hæfnikröfur: 

  • Leyfisbréf grunnskólakennara 
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður 
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum 
  • Áhugi á starfi með börnum 
  • Áhugi á starfsþróun á nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi 
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki 


Leikskólakennari óskast á deild 5 ára barna. Ef ekki fæst fagmenntaður aðili verður ráðinn almennur starfsmaður í starfið. 

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi. 
  • Áhugi á að vinna með börnum. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði. 
  • Góð færni í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta 


Stuðningsfulltrúastöður, ráðning frá 1. janúar. Vinnutími 08:00 – 13:20. Möguleiki á vinnu í frístundastarfi fram eftir degi og þar með hærra starfshlutfalli. 

Hlutastörf frístundaleiðbeinenda, ráðning frá 1. janúar. Vinnutími frá 13:00 – 17:00 eða samkvæmt samkomulagi. 

Menntunar- og hæfnikröfur: 

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi. 
  • Áhugi á að vinna með börnum. 
  • Frumkvæði og sjálfstæði. 
  • Góð færni í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta  


Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga. Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í  síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is Umsóknarfrestur um stöðurnar er til 29. nóvember 2017.

  

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira