logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Forvarnarfræðsla Magga Stef

03/10/2017

Í þessari viku hefur Magnús Stefánsson forvarnarfulltrúi verið í heimsókn hjá okkur í Lágafellsskóla. Hann hitti 10.bekk á mánudaginn og 9.bekk í gær og voru þau öll til fyrirmyndar. 8.bekkur fær síðan fræðslu á föstudagsmorguninn.

Í næstu viku eða á þriðjudagskvöldið þann 10.október kl.19:30 ætlar Maggi að koma og fræða ykkur foreldra og fara yfir það sem hann ræddi við krakkana. Þessi fræðsla er mjög mikilvæg fyrir okkur öll og vonandi sjáum við ykkur sem flest. Það þarf jú heilt þorp til að ala upp barn. Látum okkur þessi mál varða. 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira