logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Gjaldfrjáls grunnskóli í Mosfellsbæ

15/08/2017
Mosfellsbær 15. 8.2017
Til forráðamanna grunnskólabarna

Bæjarráð hefur samþykkt að frá og með hausti 2017 verði öllum börnum í grunnskólum Mosfellsbæjar
veittur hluti nauðsynlegra námsgagna þeim að kostnaðarlausu (s.s. ritföng, reikningsbækur,
stílabækur, límstifti, skæri, plast/teygjumöppur og einfaldir vasareiknar). Mosfellsbær tók þátt í
örútboði á vegum Ríkiskaupa og skilað það mjög hagstæðu verði á námsgögnum.

Námsögn verða afhent nemendum í upphafi skólaárs. Til að hlúa að umhverfinu okkar og fara vel með
sameiginlega sjóði sveitarfélagsins þá biðjum við ykkur um að leggja okkur lið og athuga hvaða
námsgögn eru til á heimilinu frá fyrri árum. Börnin eru beðin um að koma með í skólann þau gögn
sem hægt er nýta áfram (s.s möppur, pappír, stílabækur/reikningsbækur, plastvasa og fleira). Það sem
upp á vantar af námsgögnum mun skólinn bæta við. Ritföng sem þegar eru til er ágætt að eiga
heimavið.

Eftirfarandi vinnureglur gilda um gjaldfrjáls námsgögn í grunnskólum Mosfellsbæjar:

 Gagnalistar eru til staðar á heimasíðum skólanna - þar er hægt að sjá hvað hver
bekkur/árgangur þarf af nauðsynlegum námsgögnum. Velji foreldrar önnur innkaup á
gögnum en tilgreind eru í gagnalistum fellur sá kostnaður ekki innan námsgagna sem skólinn
afhendir.
 Endurnýjun á námsgögnum og ritföngum fer fram að meðaltali á þriggja ára fresti.
Undantekning er þó skriffæri (blýantar, skriftarpennar), strokleður og límstifti sem
endurnýjast árlega.
 Þeir nemendur sem eru að hefja nám í 1. bekk fá ný námsgögn þar sem þeir eru að hefja sína
skólagöngu.
 Námgögn eins og stíla- og reikningsbækur, sögu- og verkefnabækur og möppur eru að öllu
jöfnu geymd í skólanum en fara heim með nemendum ef um heimanám er að ræða. Gert er
ráð fyrir að á heimilum séu til nauðsynleg skriffæri og litir.
 Námsgögn verða ýmist sérmerkt nemanda eða verða í bekkjar-, árganga-, stofu- og eða
skólasettum.
 Eftir því sem líður á námið í grunnskóla bætast við námsgögn og munu þau verða afhent eftir
þörfum.
 Kostnaður vegna valáfanga er óbreyttur.
 Innan gjaldfrjálsra námsgagna eru ekki skólatöskur, pennaveski, íþrótta- og sundföt og
flóknari reiknivélar (nýtast áfram í framhaldsskóla).
 Týnist eða eyðileggist námsgögn vegna slæmrar meðferðar hjá nemendum eru foreldrar
ábyrgir fyrir því að námsgögn séu endurnýjuð.

Nýtt fyrirkomulag á gjaldfrjálsum grunnskóla mun taka tíma að móta. Við óskum eftir sem bestri
samvinnu í anda umhverfisverndar við endurnýtingu og meðferð námsgagna.

Með góðri kveðju,
Linda Udengård, framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs
Jóhanna Magnúsdóttir, skólastjóri Lágafellsskóla

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira