logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Laus störf við Lágafellsskóla

13/03/2017

Lágafellsskóli í Mosfellsbæ er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar. Starfsemi skólans fer fram í tveimur byggingum þar sem 1. - 2. bekkur er staðsettur í útibúi skólans, Höfðabergi,  ásamt 5 ára leikskóladeildum.

Vegna forfalla er laus staða umsjónarkennara í 2. bekk í Höfðabergi. Um er að ræða 100% starf, tímabundið út skólaárið. 

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf grunnskólakennara
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Áhugi á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun og nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki

Deildarstjóri óskast á leikskóladeild 5 ára barna í Höfðabergi. Um er að ræða 100% starfshlutfall og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Í Höfðabergi eru þrjár deildir 5 ára leikskólabarna ásamt 1. og 2. bekk grunnskóla

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Áhugi og metnaður á starfi með börnum
  • Áhugi á starfsþróun, nýjum og fjölbreyttum áherslum í skólastarfi
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélaga.

Upplýsingar veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í  síma 5259200/8968230. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is

Umsóknarfrestur um störfin er til 31. mars 2017.

Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um.

 


Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira