logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2017-18

01/03/2017

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar

skólaárið 2017 - 2018

 

Innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar fyrir skólaárið 2017-18 fer fram í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar.

Innritun 6 ára barna sem hefja grunnskólagöngu haustið 2017 fer fram frá 1. mars til 17. mars og skulu nemendur sækja grunnskóla eftir búsetu (sjá nánar reglur um skiptingu skólasvæða á vef Mosfellsbæjar www.mos.is). Innritun í frístundasel og mötuneyti vegna skólaársins 2017-18 verður auglýst sérstaklega.

Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem flytjast til Mosfellsbæjar skal vera lokið 1. apríl. Innritun barna og unglinga með lögheimili í Mosfellsbæ, sem sækja skóla í öðrum sveitarfélögum, skal berast í gegnum Íbúagátt Mosfellsbæjar fyrir 1. apríl. Umsóknir fyrir nýtt skólaár endurnýjast ekki sjálfkrafa. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér reglur um skólavist utan lögheimilis á vef Mosfellsbæjar.

Nánari upplýsingar og aðstoð varðandi innritun í grunnskóla Mosfellsbæjar veita ritarar grunnskólanna. Þeir sem óska eftir aðstoð og leiðbeiningum vegna Íbúagáttarinnar geta snúið sér til Þjónustuvers Mosfellsbæjar.

 

Fræðsluskrifstofa Mosfellsbæjar

 

    
Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira