logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Heimanámsaðstoð fyrir 1. -10. bekk

23/08/2016

 

 

HEIMANÁMSAÐSTOÐ Á BÓKASAFNI MOSFELLSBÆJAR

Rauði krossinn í Mosfellsbæ í samstarfi við Bókasafn Mosfellsbæjar verður með lestrar – og heimavinnuaðstoð frá og með þriðjudeginum 13. september frá 14-16:30 á bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2.

Heimanámsaðstoðin er samstarfsverkefni Bókasafns Mosfellsbæjar og Rauða krossins í Mosfellsbæ. Felst hún í að veita grunnskólanemendum úr 1. – 10. bekk  aðstoð við lestur og heimanám með það að markmiði að styðja og styrkja nemendur í námi sínu en samhliða því fá þau tækifæri til að kynnast þeirri þjónustu sem bókasafnið býður upp á í tengslum við nám.

Heimanámsaðstoðin verður einu sinni í viku þ.e. á þriðjudögum klukkan 14-16:30 á bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2.

Sjálfboðaliðar á vegum Rauða krossins í  Mosfellsbæ munu aðstoða og leiðbeina nemendum. Allir eru velkomnir sem aðstoð þurfa. Það verður létt og afslappað andrúmsloft þar sem hver og einn fer á sínum hraða. Þetta er tilvalið fyrir börn með námsörðugleika eða þá sem hafa íslensku sem annað tungumál – nú eða fyrir þá sem vilja klára lærdóminn snemma í vikunni.

Með þessum pósti er leitað eftir samstarfi við skólastjórnendur og kennara í grunnskólum Mosfellsbæjar og þeir vinsamlega beðnir um að vísa nemendum, sem þeir telja að hafi þörf  fyrir þessa þjónustu, á bókasafnið.

Þess má geta að  Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur í þónokkur ár boðið upp á heimanámsaðstoð af þessu tagi undir heitinu „Heilahristingur“ í samvinnu við Rauða krossinn í Reykjavík sem útvegar sjálfboðaliða í verkefnið. Þessi þjónusta hefur fallið í mjög góðan jarðveg og æ fleiri grunnskólanemendur nýta sér hana. 

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á netfangið: hulda@redcross.is eða í síma 898 6065.

Með bestu kveðju og von um góðar undirtektir,
Hulda Margrét Rútsdóttir

rammi

 

Með kveðju | Best regards,

Hulda M. Rútsdóttir

Verkefnastjóri

Project Manager

Logo Rauða krossins

 

 

Rauði krossinní Mosfellsbæ|Icelandic Red Cross

Sími/Telephone: +354 564 6035 Mob: + 354 898 6065

 

 

Rauði krossinn á Instagram

 

Rauði krossinn á Facebook

 

Rauði krossinn á Twitter

 

rammi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira