logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

14/03/2016

Fimmtudaginn 10. mars fór lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Mosfellsbæ fram í hátíðarsal Varmárskóla. Að þessu sinni hreppti Varmárskóli fyrstu tvö sætin, eftir þriggja ára samfleyta sigurgöngu hjá Lágafellsskóla.

Það var Bjarni Kristbjörnsson úr 7-EJÚ sem sigraði, í öðru sæti varð svo Hálfdan Árni Jónsson úr 7-HK og Bengta Kristín Methúsalemsdóttir í 7-MLG Lágafellsskóla lenti í þriðja sæti. 

Aðrir keppendur úr Lágafellsskóla voru þær Anna Katrín Bjarkadóttir 7-FÓ, Elísabet Tinna Haraldsdóttir 7-FÓ, Guðlaug Karen Ingólfsdóttir 7-MLG og Isabel Karin Aguilar 7-KI og stóðu þær sig allar með miklum sóma en þetta er í fyrsta skipti í sögu skólans sem liðið er eingöngu skipað stúlkum.

Gestir fengu að hlusta á keppendur flytja brot út sögunni Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur og ljóð eftir Guðmund Böðvarsson auk þess sem nemendur fluttu sjálfvalin ljóð. Skólakór Varmárskóla söng nokkur lög og tvær stúlkur frá Listaskóla Mosfellsbæjar spiluðu á píanó.  

Hér eru myndir af keppendum Lágafellskóla og einnig má sjá myndir frá þessu hátíðlega kvöldi á myndasíðu Varmárskóla.

Einnig hlaut Snædís Erla Erlendsdóttir 7-MLG ásamt þremur nemendum úr Varmárskóla viðurkenningar fyrir myndskreytingar á dagskrá keppninnar.   

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira