logo
  • Samvera -
  • Samvinna -
  • Samkennd

Samræmd próf í 7.bekk 24.-25. sep.

21/09/2015

Upplýsingar um samræmt könnunarpróf

7. árgangs 2015

 

Kæru nemendur og foreldrar.

 

Vikuna 21. - 25. september verða lögð fyrir samræmd próf í fjórða, sjöunda og tíunda bekk. Samkvæmt 2. grein í reglugerð Menntamálaráðuneytisins um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra könnunarprófa er tilgangur þeirra eftirfarandi:

  • a) athuga eftir því sem kostur er, að hvaða marki námsmarkmiðum aðalnámskrár í viðkomandi námsgrein eða námsþáttum hafi verið náð,
  • b) vera leiðbeinandi um áherslur í kennslu fyrir einstaka nemendur,
  • c) veita nemendum, foreldrum og skólum upplýsingar um námsárangur og náms­stöðu nemenda,
  • d) veita upplýsingar um hvernig skólar standa í þeim námsgreinum sem prófað er úr, miðað við aðra skóla landsins.

Mæting í prófin: Ekki seinna en 8:50.

Próftíminn er sá tími sem nemandinn fær til að svara spurningum – þar fyrir utan er sá tími sem fer í dreifingu prófhefta, leiðbeiningar til nemenda og upplestur nafna þeirra. Íslenska er fimmtudaginn 24. september og stærðfræði er föstudaginn 25. september.

Fyrri hluti kl. 9:00-10:10, nesti kl. 10:10-10:30 og seinni hluti kl.10:30-11:40 þeir sem eru með stuðningsúrræði fá 10 mín aukalega í hvorum hluta fyrir sig.

Gott nesti er nauðsyn báða dagana og ekki er amast við drykkjum  á borði að þessu sinni en þó má ekki koma með gos eða orkudrykki. Nemendur í mötuneyti geta nýtt sér það að loknum prófunum. Farið er heim að loknu prófi á fim. en sérgreinar halda sér á fös. 12:00-13:20.

 

Ekki er heimilt að fara úr prófunum fyrr en allir hafa lokið við hvern hluta, biðjum við nemendur því að hafa með sér frjálslestrarbók til að lesa í báða dagana.

 

Til þess að allt sé til reiðu, biðjum við nemendur um að koma með allt sem þarf að hafa í stærðfræðiprófið mánudaginn 21.september. Þ.e: vasareikni, reglustiku, gráðuboga, dökkan blýant, yddara, strokleður, kúlupenna með svörtu eða dökkbláu bleki og frjálslestrarbók. Gott er að hafa þetta allt í poka merktu barninu.

ATH. Nemendur eiga að nota penna með svörtu eða dökkbláu bleki í krossaspurningum, líka í stærðfræði. Skrautpennar eru með öllu bannaðir. Nemendur mega nota dökkan blýant við útreikninga í stærðfræðiprófi og í stafsetningu og ritun í íslensku.

 

Þessi gögn verða forráðamenn að útvega börnum sínum sjálfir.

 

Munið: Verið úthvíld, farið snemma að sofa fyrir prófin og hafið með ykkur gott nesti og góða skapið.

Gangi ykkur vel í prófunum J

Umsjónarkennarar sjöunda bekkjar, Freyja, Kristín Inga og Lea.

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira